Mon 26 Feb 2007

Hvetjum alla til að mæta á alþjóðlega sýningu Hundaræktarfélags Íslands næstu helgi í Reiðhöllinni Víðidal. Kolka er að „keppa“ á sunnudaginn kl. 11.02 (áætlun gæti þó verið flýtt) í hring númer tvö hjá dómaranum Johan Juslin sem er einmitt samlandi Kolku (frá Finnlandi). Ef hún kemst í úrslit þá verða þau upp úr 15.00.
Þetta verða hennar fyrstu fjórar mínútur af frægð sem vonandi ganga vel. Við erum allavega búin að vera dugleg að æfa - höfum m.a. farið í tvisvar í viku í sýningarþjálfun undanfarnar vikur.
February 27th, 2007 at 13:24
VVvvííííí Kolka að fara að keppa
Kannski að mar kíkji og hvetji hana áfram
Gangi ykkur ofsalega svakalega vel
February 27th, 2007 at 22:35
Takk fyrir það… en endilega koma - gott að safna klappliði til að hafa áhrif á dómarann
Metfjöldi hunda verður sýndur, alls 760 hundar svo þetta verður örugglega mjög gaman. Hér má nálgast dagskrána: http://hrfi.is/displayer.asp?page=44&Article_ID=142&NWS=NWS&ap=NewsDetail.asp&p=ASP\~Pg44.asp
March 1st, 2007 at 13:59
Hafiði ekki örugglega séð “Best in Show”?
March 1st, 2007 at 16:48
Jú jú. Gott tilefni núna til þess að sjá hana aftur