Ég vona svo sannarlega að Hafnfirðingar kjósi hreinna loft og ósnorta náttúru fram yfir gull og græna álskóga næstkomandi laugardag. Peningar eru nefnilega ekki allt og það á ekki að vera hægt að kaupa fólk til að sætta sig minni loftgæði.
Hér er lítil auglýsing sem ég gerði ásamt öðrum og lýsir þessu ástandi í Hafnarfirði ágætlega.
Ef ég væri Hafnfirðingur myndi ég kjósa á móti stækkun.
Þá er loksins komin almennilegur valkostur fyrir þá kjósendur sem eru grænir en eiga ekki samleið með hreyfingunni lengst til vinstri. Íslandshreyfingin - lifandi land tilkynnti framboð í dag.
Eins og kom fram í færslu hér á undan fórum við á söngleikinn LEG í Þjóðleikhúsinu á föstudaginn. Í gær (sunnudag) fórum við svo á annan söngleik með þriggja stafa orði - ÁST - í Borgarleikhúsinu.
ÁST er hreinlega með betri sýningu sem við höfum séð í háa frúarinnar tíð. Hún er afslöppuð og áreynslulaus, laus við alla tilgerð en jafnframt áhugaverð, fyndin, raunsæ og innihaldsrík. Hún hélt athyglinni allan tíman. Lagavalið er mjög áhugavert í þessum skemmtilega söngleik meðal annars gamlir íslenskir söngvar, júróvisjón lög, poppslagarar, rokklög (t.d. Fjöllin hafa vakað), Bítlalög, erlend popp og rokklög og svo framvegis. Allt lög sem maður þekkir.
Dáldið fyndið að sjá þessa tvo söngleiki sömu helgina, LEG (í Þjóðleikhúsinu) sem fjallar um ástir og örlög ungs fólks í Fjölbraut í Garðabæ og svo ÁST (í Borgarleikhúsinu) sem fjallar um ástir og örlög gamals fólks á ónefndu elliheimili.
Það sem hefði toppað helgina var að fara að sjá söngleikinn LÍF í (í Landsbyggðarleikhúsinu) sem fjallar um ástir og örlög miðaldra fólks á vinnustað úti á landi (djók).
Fórum á söngleikinn LEG í gærkvöldi. Þetta var hin prýðislegasta skemmtun en samt alls ekki eins gróft og við bjuggumst við - búið að þurrka upp blóðið sem lekið hefur af myndasögunum hans Hugleiks og skipta út fyrir rúnk og ríðubrandara. Söngleikurinn var farsakenndur á köflum sem var okkur ekki sérstaklega að skapi.
Það sem sat í mér eftir sýninguna var lagið „Hitler var grafískur hönnuður“ - en stórskemmtilegur textinn (brot úr honum) var á þessa leið:
„Hitler, var grafískur hönnuður.
Hitler, var markaðsfræðingur, voóóó.
Hannaði heimsins þekktasta lógó.“
Hér má hlusta á lagið í heild sinni. Mæli með laginu og sýningunni.
Þá er hundasýningu HRFÍ lokið og gekk Kolku bara mjög vel. Hún var ein sinnar tegundar og var dæmd af finnska dómaranum Johan Juslin. Hann skoðaði hana á borðinu og fékk að sjá Kolku hreyfa sig frá hinum ýmsu sjónarhornum.
Kolka vann besta tík og besti hvolpur tegundar og að auki fékk hún heiðursverðlaun sem kom henni í úrslitin besti hvolpur sýningar 6-9 mánaða. Í úrslitunum voru 22 hvolpar og einungis 4 hvolpar sem komust í efstu fjögur sætin en Kolka fékk ekki sæti.
Eftir úrslitin fengum við umsögnina sem Johan Juslin gaf Kolku og við erum vægast sagt ánægð með hana.
"Excellent breed type. Nice broad scull with a strong muzzle. Ex. neck, strong bones in good balance to the body – correct level topline. Needs to strong up in hindquarters. Puppycoat. Moves well for age. Very correct in profile."
Eins og endurspeglast hér á blogginu kemst lítið annað að en Kolka þessar vikurnar. Á þeim nótum minnum við á að fyrsta sýningin sem Kolka tekur þátt í er um helgina. Þetta er alþjóðleg sýning HRFÍ og er eins og venjulega í reiðhöllinni í Víðidal og kostar 500 kr inn.
Hún verður í hring II hjá Finnanum Johan Juslin á sunnudag kl. 11.02–11.06. Svo verður hún í básnum hjá Fjár- og hjarðhundadeildinni í anddyri reiðhallarinnar á laugardag milli 13.30 og 14.15 og sunnudag milli 09.00 og 10.00.
Kolka var í snyrtingu í gær og fór svo í myndatöku hjá Helga „afa“ sínum í gærkvöldi og þar var þessi mynd tekin.