Sat 10 Mar 2007

Fórum á söngleikinn LEG í gærkvöldi. Þetta var hin prýðislegasta skemmtun en samt alls ekki eins gróft og við bjuggumst við - búið að þurrka upp blóðið sem lekið hefur af myndasögunum hans Hugleiks og skipta út fyrir rúnk og ríðubrandara. Söngleikurinn var farsakenndur á köflum sem var okkur ekki sérstaklega að skapi.
Það sem sat í mér eftir sýninguna var lagið „Hitler var grafískur hönnuður“ - en stórskemmtilegur textinn (brot úr honum) var á þessa leið:
„Hitler, var grafískur hönnuður.
Hitler, var markaðsfræðingur, voóóó.
Hannaði heimsins þekktasta lógó.“
Hér má hlusta á lagið í heild sinni. Mæli með laginu og sýningunni.
March 13th, 2007 at 16:41
Ég heyrði einmitt athyglisverða umræðu um listamenn sem virðast lausir við alla almenna krítík vegna þess að þeir eru sjálfir að “krítísera með list sinni”, eru sem sagt frjálsir að gera það sem þeim sýnist vegna þessarar ímyndar sem þeir hafa skapað sér…