Höfum verið iðin við að yfirgefa höfuðstaðinn og heimaborgina Reykjavík í sumar til að kanna lönd, strönd og jafnvel eina og eina önd. Á laugardaginn héldum við suður á bóginn og renndum upp í bústað til pabba og Helgu og co. undir Mýrdalsjökli með stuttri viðkomu hjá afa mínum og ömmu. Vorum í góðu yfirlæti í góðum félagsskap í góðu veðri. Þegar við komum heim í dag komum við úr sól og hita í súld og ský. Þetta var hin fínasta helgi. Hér eru tvær myndir af Kolku við bústaðinn hjá þeim og svo úr gönguferð upp á fjalli.

Kolka bústaður

Kolka á fjalli