Thu 16 Aug 2007
Í mörg ár hef ég haft fuglinn skarf á heilanum - hef heillast af honum án þess að vita nákvæmlega af hverju. Skarfur heitir á grísku Phalacrocorax en á ensku Cormorant. Á Wikipediu er hægt að lesa margt fróðlegt um tegundina m.a. annars að til eru 40 mismunandi undirtegundir af skarfi og að í Kína sé hann notaður til að veiða fisk. Það virkar þannig að snöru er komið utan um háls fuglsins og hann látinn veiða fiska. Smærri fiska getur hann gleypt en stærri fiskar stoppa í hálsinum vegna snörunnar sem veiðimaðurinn nær svo úr hálsinum.

Ég hef helst nýtt þennan áhuga á skarfinum í tengslum við tónlistarverkefnið Uzi Jakapi en stefnt er á plötu núna í haust þegar Friðrik bróðir fær frí frá upptökunámi í London. Skarfur með útþanda vængi er einmitt merki Uzi Jakapi. Býst við að platan fái nafnið Phalacrocorax frekar en skarfur (of djass-tilgerðarlegt) eða Cormorant (of hernaðarlegt).

Ég held að það sem heilli mig sé að skarfurinn heldur úti vængjum sínum (það veit enginn af hverju en líklega til þess að þurrka þá) í tíma og ótíma – eins og að hann sé að svífa án þess að takast á loft.
Fyrir nokkrum árum benti pabbi mér á að það væri skarfa „hang-out“ í Hafnarfirði og fórum við og tókum ljósmyndir af þeim sem ég nýtti í smá myndskeið fyrir Uzi Jakapi (sjá hér að neðan). Nú þegar ég hef eignast góða myndbandstökuvél (réttara sagt fyrirtækið EKKERT) þá hef ég tekið upp skarfa við Borgarfjarðarbrú og í Hafnarfirði og veit ég af skarfaskeri í Kolgrafarfirði (rétt hjá Berserkseyri á Snæfellsnesi) sem ég ætla að kíkja á næst þegar haldið verður vestur.
Ég væri til í að kaupa mér uppstoppaðan skarf til þess að hafa í stofunni hjá mér. Ef einhver vill gleðja mig á næsta afmæli þá kostar það bara 25 til 45 þúsund…. ekki gleyma að hann þarf að vera uppstoppaður með vængina úti.
September 1st, 2007 at 7:25
En sjitt !!! í Haust verður þá enginn bassi á plötunni, hef ég verið rekinn án þess að vita það?… Uh. Huh…
September 1st, 2007 at 16:26
Engar áhyggjur - eins og þú líklega veist þá lifum við á 21. öldinni sem er öld rafrænna samskipta. Alveg hægt að nota þessi samskipti við plötugerð enda engin Uzi jakapi breiðskífa gerð án das bassspieleren aus Salzburg.
September 2nd, 2007 at 17:55
flott, vara farinn að hafa áhyggjur af framanum á íslandi. Verð readý þegar kallið kemur.