Sat 18 Aug 2007
Opnaði sýningu í gallerí Temp í gærkvöldi á Laugavegi 35 (lítið gallerí fyrir grafíska hönnuði inn af skóbúðinni Far) við lítinn fjölda viðstaddra (eiginlega bara nánustu fjölskyldu mína). Það varð til þess að við þurftum að drekka allt hvítvínið sjálf. Ég get líklega sjálfum mér um kennt þar sem ég sendi bara út boð í tölvupósti í hádeginu í gær.

Hér er smá texti um sýninguna.
Verkin sem sýnd eru í gallerí Temp eru prentverk unnin á síðustu árum upp úr skissum úr enskri vasaorðabók. Hugmyndin er að búa til óhlutbundin myndverk innblásin af einu orði sem er efst á þeirri síðu sem teiknað er á í orðabókinni, gera þannig orðið að mynd. Aðferðin sem notast er við er byggð á kenningum súrrealistana um að ná í myndheim djúpt í undirmeðvitundina með því undirbúa sig andlega undir hvert verk. Fyrst hreinsa hugann, velja síðu af handahófi og byrja strax á teikna án þess að hugsa. Setja þannig niður á blað það fyrsta sem kemur í hugann án þess að láta hugsun koma að máli. Þannig verður penninn bein framlenging á hugmyndafluginu. Myndin þróast svo áfram með því að treysta á tilfinninguna eina en ekki hugsanir eða rök, reglur eða hefðir.
Sýningin verður uppi næstu tvær vikur fyrir þá sem vilja skoða. Getið líka slegið á þráðinn og fengið leiðsögn. Svo er ég að fara purfa nýtt efni í gallerí Dóra (einn veggur bakvið Halldór fyrrum samstarfs mann minn upp í Hvíta húsi). Er svo með tvær sýningar bókaðar eftir áramót, eina á Sólon í janúar og svo set ég upp mína fyrst „stóru“ sýningu í Listasafni Borgarness í febrúar eða mars. Stefni á að sýna myndbands og hljóðverk þar ásamt stórum ljósakassaverkum.