Fyrir tæpum tveimur árum ákváðum við að flikka upp á svefnherbergið því okkur þótti það heldur geðspítalalegt með sínum hvítu veggjum, hvítu rimlagluggatjöldum, hvítu skápum og hvítu rúmfötum. Við ákváðum að mála vegginn eins og við sögðum frá hér og svo nokkru síðar var ákveðið hvernig veggmyndin ætti að vera – sagt var frá því hér.

Síðan hafa liðin tvö ár og engin veggmynd komin á vegginn þótt að margt annað hafi verið gert til þess að gera herbergið vistlegra. En svo í síðustu viku voru hendur látnar standa fram úr ermum og hafist var handa við verkið; skroppið í Slippfélagið og bronsmálning keypt, myndin stækkuð upp á vegginn og byrjað að mála.

Hér er mynd af veggnum (Kolka heimtaði að fá að vera með - enda vön fyrirsæta á ferðinni). Á þó eftir að mála eina umferð ofan í smæstu greinarnar en það sést ekki á myndinni.

Veggmynd

Nú eigum við bara eftir að finna fallegt náttborð, kaupa fallegt rúmteppi og púða, nýja skápa (langtímamarkmið) breyta lýsingunni og gera eitthvað smálegt til skreytingar.