Ekkert ehf er farið að slíta barnsskónum og flutti í síðustu viku að heiman enda orðið 9 mánaða gamalt. Ég leigði vinnustofupláss fyrir fyrirtækið og myndlistina í Skipholti í vinnustofukomplexinu í gamla Exton húsinu. Þar eru arkitektar, tónlistarfólk, hönnuðir og listamenn sem leigja pláss þarna. Ég er í rými með listakonu og Róberti bekkjarfélaga mínum úr LHÍ sem er hönnuður og landslagsarkitekt. Þótt það hafi verið fínt að vinna heima að mörgu leiti þá var það frekar pirrandi að vera alltaf í vinnunni allan daginn, öll kvöld og í raun allan sólarhringinn. Svo var draslið sem mér fylgir farið að flæða út úr herberginu á Laugarnesveginum út um alla íbúð.
Eins og sjá má á myndinni þá er hátt til lofts, vítt til veggja og bjart. Nóg af veggplássi til þess að hengja allt skemmtilega dótið sem ég hef safnað í gegnum árin.
Allir velkomnir í heimsókn. Kaffi á könnunni ef fólk hringir á undan sér.
Kolka fór í dag í smalaeðlispróf á vegum fjárhundadeildar HRFÍ. Hún stóð sig vel og við höldum að hún hafi náð, hún skemmti sér allavega konungalega vel. Við fáum niðurstöðuna senda í pósti í næstu viku og munum birta hana hér á síðunni.
Kolka var MJÖG áhugasöm um kindurnar og gelti heilmikið, rak þær og hljóp fyrir þær. Þegar kindurnar voru komnar að girðingunni sneru þær sér stundum við og reyndu að stanga í áttina til Kolku án árangurs því Kolka er töluvert mikið sneggri en var einnig snögg að hlaupa til baka til þeirra. Við fengum reyndar að hitta kindurnar núna á miðvikudaginn hjá Guðrúnu sem er tengilliður Border Collie og býr á Bjarnastöðum í Grímsnesi. Þar tókum eina stutta prufuferð.
Ég er með sýningu í gangi á Sequences - tímatengdu myndlistarhátíðinni - sem stendur yfir þessa vikuna. Þetta er hljóðverkið Mögnuð þögn sem er 10 rása hljóðinnsetning á þremur hæðum. Ég fékk afnot af húsi sem á að fara að rífa (húsið er hluti af þessum Barónsreit sem Samson feðgar ætla að endurbyggja). Húsið er á Skúlagötu 26, í sama húsi og Dominos, beint á móti Aktu taktu við Sæbrautina.
Sýningin er opin 16.00–19.00 virka daga en verður opin frá 12.00–16.00 á laugardag og sunnudag. Hér er auglýsing og svo lýsing á verkinu mínu. Allir velkomnir - rennið á hávaðann.
MÖGNUÐ ÞÖGN - MAGNIFICENT SILENCE
Viktor Shklovsky, rússneskur formalisti, mótaði hugmynd sem hann kallaði „Ostranenie“ í byrjun síðustu aldar. Ostranenie merkir framandleiki (á ensku „making strange“). Hugmyndin gekk út á að gera kunnuglega hluti ókunnuga til þess að upplifa þeirra listrænu hliðar. Viktor Shlkovsky vildi óvanalega, framandi og ferska nálgun á orð og hugmyndir. Hann sagði: „Þegar við sjáum sama hlutinn aftur og aftur, byrjum við að þekkja hann. Hluturinn er fyrir framan okkur og við vitum það en við sjáum hann í rauninni ekki - þess vegna getum við ekki sagt neitt veigamikið um hann.“ Viktor Shklovsky fannst listin vera „aðferð við að setja viðteknar venjur heimsins í uppnám.“
Í hljóðinnsetningunni MÖGNUÐ ÞÖGN reyni ég að yfirfæra Ostranenie yfir á hljóð í tilraun til þess að gera hverdagsleg heimilishljóð framandi. Ég kaus að vinna með þögnina því hún samanstendur af svo mörgum fjölbreyttum hljóðum. Eins og John Cage bennti á: „Það er ekkert til sem heitir tómarúm. Það er alltaf eitthvað að sjá eða heyra. Alvega sama hvað við reynum að búa til þögn - við getum það bara alls ekki.“
Með því að magna upp þessi heimilishljóð er hægt að hlusta á þögnina í smáatriðum og heyra áferð hennar, uppbyggingu og takt og upplifa hana í nýju samhengi. Þögn sem er ekki þögul heldur hávær eins og flest okkar hafa aldrei heyrt hana áður.
Kolku gekk mjög vel á alþjóðlegu hundasýningu HRFÍ nú um helgina þar sem yfir 800 hundar af 83 tegundum tóku þátt. Hún fékk 1. einkunn, besti hundur tegundar, heiðursverðlaun, íslenskt meistarastig og alþjóðlegt meistarastig. Hún fékk mjög góða umsögn hjá pólska dómaranum Tomasz Borkowski:
"Nice typical compact with big head + pose (nose?). Nice topline.
Excellent coat. Nice in movements.
Elegant, friendly with good pigmentations. Strong bones."
Hún komst því í úrslit í tegundahópi 1 þar sem átta bestu fulltrúar fjár- og hjarðhunda kepptu. Kolka gerði sér lítið fyrir og lenti í 3. sæti. Við erum alsæl með þennan árangur.
Hér erum við komum í úrlist í tegundahópi 1. Vinstra megin er Australian Shepherd en hægra megin er fjarskyldur ættingi, Puli.
Hér er Harry Tast dómari frá Finnlandi að dæma Kolku.
Þriðja sætið í tegundahópi 1 staðreynd. Hér er ég að fara að stilla Kolku upp fyrir pabba sem var svo góður að taka myndir fyrir okkur.
Kolka er að fara að taka þátt í alþjóðlegri hundasýningu næstu helgi í annað sinn. Síðast var hún dæmd af dómara frá fæðingarlandinu (Finnlandi) og fékk mjög góða dóma. Núna verður hún dæmd af dómara frá upprunalandinu Póllandi og það verður mjög spennandi að sjá hvað hann hefur um hana að segja.
Bjarni ætlar að sýna hana - skoppa fallega með hana í hring, fram og til baka og svo stilla henni glæsilega upp fyrir framan dómarann pólska. Það er búið að æfa stíft fyrir þessar fjórar mínútur - við höfum farið með Kolku í sýningarþjálfun tvisvar í viku undanfarinn einn og hálfan mánuð ásamt því að skokka eitthvað með hana á hverjum degi til þess að venja hana af því að hoppa af kæti og tölta af einbeitingu í staðinn.
Þegar við sýndum hana síðasta vor þá var hún í hvolpaflokki og vorum við ennþá frekar miklir byrjendur bæði í að sýna og hvernig á að sýna okkar tegund (það er mjög misjafnt hvernig tegundir eru sýndar). Núna höfum við lært heilmikið og ætti þetta því vonandi að ganga eins á best verður á kosið.
Fyrir þá sem hafa áhuga þá er hún sýnd á laugardaginn frá 13.10-13.14 í hring I. Þetta er í reiðhöllinni í Víðidal og kostar 500 krónur á haus að komast inn.