Mon 8 Oct 2007

Kolku gekk mjög vel á alþjóðlegu hundasýningu HRFÍ nú um helgina þar sem yfir 800 hundar af 83 tegundum tóku þátt. Hún fékk 1. einkunn, besti hundur tegundar, heiðursverðlaun, íslenskt meistarastig og alþjóðlegt meistarastig. Hún fékk mjög góða umsögn hjá pólska dómaranum Tomasz Borkowski:
"Nice typical compact with big head + pose (nose?). Nice topline. Excellent coat. Nice in movements. Elegant, friendly with good pigmentations. Strong bones."
Hún komst því í úrslit í tegundahópi 1 þar sem átta bestu fulltrúar fjár- og hjarðhunda kepptu. Kolka gerði sér lítið fyrir og lenti í 3. sæti. Við erum alsæl með þennan árangur.

Hér erum við komum í úrlist í tegundahópi 1. Vinstra megin er Australian Shepherd en hægra megin er fjarskyldur ættingi, Puli.

Hér er Harry Tast dómari frá Finnlandi að dæma Kolku.

Þriðja sætið í tegundahópi 1 staðreynd. Hér er ég að fara að stilla Kolku upp fyrir pabba sem var svo góður að taka myndir fyrir okkur.
October 8th, 2007 at 21:03
Ég óska Kolku innilega til hamingju með góðan árangur um helgina.
October 9th, 2007 at 8:41
Ekkert smá flott hjá hundkvekendinu.
Lýsingin á henni er algjör snilld. Mér finnst reyndar að Bjarni hefði líka átt að fá lýsingu:
´Big, but friendly ego, heavenly light movements, red shining coat, questionable waistline´
Woof!
October 10th, 2007 at 13:54
Til hamingju með hana aftur..flottir borðarnir
Styttist í næstu heimsókn
October 15th, 2007 at 15:02
Til hamingju með árangurinn Kolka, Bjarni og Dagbjört. ég er sammála Huldu að Bjarni hefði líka mátt fá alþjóðleg útlitsstig og mér finnst lýsingin hennar mjög góð. Bestu kveðjur, HHHHH.
October 16th, 2007 at 22:12
Takk fyrir þetta allir.
Ég verð að koma mér í betra form fyrir næstu sýningu svo ég fái betri dóma hjá Huldu. En mér til varnar þá er þetta nú varla marktækur dómur þar sem dómarinn var ekki á staðnum og ekki glæsilegar hreyfingarnar mínar.