Sun 21 Oct 2007

Kolka fór í dag í smalaeðlispróf á vegum fjárhundadeildar HRFÍ. Hún stóð sig vel og við höldum að hún hafi náð, hún skemmti sér allavega konungalega vel. Við fáum niðurstöðuna senda í pósti í næstu viku og munum birta hana hér á síðunni.
Kolka var MJÖG áhugasöm um kindurnar og gelti heilmikið, rak þær og hljóp fyrir þær. Þegar kindurnar voru komnar að girðingunni sneru þær sér stundum við og reyndu að stanga í áttina til Kolku án árangurs því Kolka er töluvert mikið sneggri en var einnig snögg að hlaupa til baka til þeirra. Við fengum reyndar að hitta kindurnar núna á miðvikudaginn hjá Guðrúnu sem er tengilliður Border Collie og býr á Bjarnastöðum í Grímsnesi. Þar tókum eina stutta prufuferð.
Hér er myndskeið samsett úr báðum skiptunum.
October 21st, 2007 at 1:20
Þetta er nú meira krúttið. Ég verð nú samt að segja að ef ég væri kind þá hefði ég líka reynt að stanga hana, hehe.
Það hefur kannski eitthvað með það að gera að ég er í hrútsmerkinu.
October 22nd, 2007 at 12:23
Okkur fannst hún standa sig mjög vel í smaleríinu en Halldóra Björg spurði hvort hún ætti að vera með bindi í smalavinnunni? Ég spyr þess sama.
October 22nd, 2007 at 19:14
Rosa dugleg
svo skemmir ekki fyrir tónlistin á bakvið
October 22nd, 2007 at 22:23
Kindin hefur kannski haldið að Kolka væri lamb með ofvirkni og athyglisbrest með kjánalæti og hefði því verið að reyna að þagga niður í henni.
Bindið er auðvelt að útskýra, við vildum koma vel fyrir hjá dómurunum á þessum hátíðardegi. En bindið er samt reyndar stuttur taumur sem flækist ekki fyrir henni en við getum gripið í auðveldlega. Þar er nefnilega svo óþægilegt að finna hálsólina á svona loðnum hundi. Þetta var samt góð og gild athugasemd og mjög fyndið þegar þið bentuð okkur á þetta.
Já tónlistin er skemmtileg - eldgömul bluegrass banjó tónlist. Við settum hana ekki inn á myndskeiðið, svona er þetta bara í sveitinni - þetta kemur þegar vindurinn þýtur í gegnum grasið.