Ég verð fyrir miklum vonbrigðum ef Barði vinnur ekki söngvakeppni sjónvarpsins í ár með lagið sitt „Ho ho ho we say hey hey hey“.

Ég fæ bara ekki nóg af þessu gríni og kemst alltaf í gott skap þegar ég heyri þetta.

Í heildina er keppnin eins og við vara að búast - leiðinleg. Ég bjóst reyndar við miklu af Dr. Gunna en hann hefur valdið miklum vonbrigðum, lögin hans tvö hingað til hafa verið með eindæmum slök og óeftirminnileg. Mig langar að heyra eitthvað í þeim dúr sem hann gert áður t.d. á síðustu plötu hans Stóri hvellur (ein besta plata síðari ára). Hver man ekki eftir smellinum Snakk fyrir pakk (sem hljómaði í snakkauglýsingu í marga mánuði) og Homo Sapiens sem ég gerði einmitt myndband við.

Hann á eitt lag eftir, það er vonandi að hann rifji upp smá popppönktakta og syngi sjálfur í þetta skiptið enda frábærlega skemmtilegur söngvari og lagahöfundur. Annars er verður þetta nokkuð öruggt hjá Barða.