Púsl Við keyptum okkur púsl um daginn. Hvorugt okkar hefur púslað í mörg mörg ár. Ég ekki síðan ég var lítið óspjallað barn en Bjarni þegar hann var um 13 ára. Hann fékk þá púsl í jólagjöf og byrjaði á því um miðnætti sama kvöld og kláraði 9 um morguninn.

Við vorum auðvitað þvílíkir ofurhugar við val á púsli og völdum það sem hafði hvað flest púsluspil og það sem varð fyrir valinu var 3000 stykkja púsl. Ég veit ekki alveg hvað við vorum að koma okkur í en þetta er svo sem ágætis áskorun.

Hingað til erum við ekki einu sinni búin að grófflokka púslin þar sem þetta eru svo miklu minni og fleiri púsl en við gerðum okkur grein fyrir. Ástæðan fyrir því að við völdum svona stóra stykkjatölu er að við keyptum þetta í leikfangabúðinni Toys´R´Us. Eins og allir vita er þetta barnaleikfangabúð og þar af leiðandi þurftum við að velja það erfiðasta, annað hefði verið frekar hallærislegt.

Úff, þegar við opnuðum kassann sáum við að þetta verður sko enginn barnaleikur.

Allir eru velkomnir að kíkja í heimsókn til að hjálpa okkur og í verðlaun fá þeir og hinir sömu kaffi/te/kakó/bjór til að væta kverkanar. Þeir sem hinsvegar eru tlbúnir í að leggja hjarta sitt og sálu í þetta fá það launað með fínni þakkargjörðarmáltíð.

púsl 2