January 2008


Dagbjört benti mér á þetta.

Mars Volta var að gera ábreiðslu (cover) af Birthday (ísl. Afmæli) með Sykurmolunum. Fyndna við þetta er að þetta gæti alveg verið Mars Volta lag.

Mars Volta Sugarcubes

Mars Volta eru ein framsæknasta rokkhljómsveitin í dag og hafa verið undanfarin ár. Við sáum þá í Astoria tónleikahöllinni í London þegar við bjuggum í Englandi. Það voru mögnuðustu tónleikar sem ég hef farið með hlustir mínar á - 10 gæsahúðir af 10 mögulegum.

Mars Volta voru nýbúnir að gefa út De-Loused in the Comatorium og voru á tónleikaferð um heiminn að kynna plötuna. Umslagið var sérstaklega skemmtilegt - var hannað af Storm Thorgerson sem á langan feril að baki, m.a. gert flest öll umslög Pink Floyd.

Mars Volta Sugarcubes

Hér er lagið - Mars Volta ábreiðsla af Sykurmolunum.

Hér er svo myndband Sykurmolana við ensku útgáfu Birthday.

Þér er boðið á opnun mína kl. 16.00 í Listasafni Borgarness laugardaginn 2. febrúar næstkomandi.

Framandleiki

Á sýningunni eru 6 prentuð verk í 1.5 x 1 m ljósakössum. Verkin eru unnin á síðustu árum, þau elstu frá árinu 2004 og þau yngstu frá þessu ári.

Verkin eru nútímalandslagsmyndir en í þeim er leitast við að gera hið hversdagslega framandi og það kunnuglega spennandi með því beina sjónum áhorfandans að borgarlandslaginu sem líður hjá okkur án þess að við veitum því eftirtekt. Markmið verkanna er meðal annars að þröngva áhorfandanum til þess að sjá umhverfi okkar í nýju ljósi með því að slíta tengingu myndefnisins við upprunann.

Verkin eru unnin úr skjámyndum úr myndskeiðum. Annars vegar myndskeið sem tekin eru á ferð og hins vegar af viðfangsefnum sem hreyfast. Skjámyndunum er síðan raðað saman eftir reglum nauhyggjunar þar sem einfaldleiki, endurtekningar, taktur og hljómræn heild eru markmið myndsköpunarinnar.

Allir velkomnir.

Ég er með sýningu í gangi núna í febrúar á Sólon þar sem ég sýni verk úr myndröðinni Undir meðvitund.

Undir meðvitund

Ég var ekki með neina opnun þar sem engin tími vannst til þess að undirbúa þess konar fögnuð. Fyrir utan það verð ég með stóra opnun í Listasafni Borgarnes 2. febrúar (allir velkomnir - nánar auglýst síðar) þar sem ég sýni verk úr Ostranenie myndröðinni sem nú er komin með íslenska nafnið Framandleiki og rammarnir eru ljósakassar sem ég lét smíða fyrir mig í Kína.

Sýningin á Sólon verður þangað til í byrjun mars mánaðar og eru öll verkin til sölu - vinir og vandamenn fá góðan afslátt að vanda.

Undir meðvitund

Í framhaldi af síðustu færslu þá mundi ég eftir þessari bráðfyndnu auglýsingu fyrir Pepsi.

Sniðugt.

Í framhaldi af síðustu færslu mundi ég eftir þessu minnistæða plötuumslagi fyrir hljómsveitina Alice In Chains frá Seattle með mynd af þrífættum hundi.

Alice In Chains

Ég hlustaði töluvert á þessa hljómsveit á mínum yngri árum þegar Grunge tímabilið var í hæðstu hæðum. Söngvarinn Layne Staley dó úr of stórum skammti af blöndu af heróíni og spítti (svo kallað „speedball“ á ensku) árið 2002 en hann hafði mjög kraftmikla og hráa rödd sem var einkennandi fyrir hljómsveitina. Hann fannst í látinn í íbúð sinni og er talið að hann hafi þá verið látinn í tvær vikur.

Þegar ég var að lesa mér til um hljómsveitina núna komst ég að því að hún er enn starfandi með nýjan söngvara.

Í framhaldi af síðustu færslu þá fann ég þessa skemmtilegu afþreygingarsíðu fyrir tilviljun. Á henni er hægt er að búa til sín eigin dýr með því að setja saman hluta af mismunandi dýrum.

Switchzoo

Á aðeins nokkrum mínútum bjó ég til þessa sætu dýrategund hér fyrir ofan. Bakið er af hundi.

Í framhaldi af síðustu færslu mundi ég eftir skemmtilegum verkum eftir þýzka listamanninn Thomas Grünfeld sem hann kallar Misfits. Í þeim blandar hann saman ólíkum dýrategundum og býr til ný dýr - þar notar hann meðal annars mikið hunda. Hér eru tvö dæmi.

Thomas Grünfeld

Thomas Grunfeld, Misfit (St. Bernhard), 1994 Mixed media (Taxidermy), 24″ x 47″ x 28″, The Saatchi Gallery, London

Thomas Grünfeld

Thomas Grünfeld Misfit (Dobermann), 1998 Taxidermie 35 x 120 x 80 cmHér má sjá fleiri verk eftir hann.

Í framhaldi af færslunni hérna á undan þá gróf ég upp mynd frá ferðum okkar til Lundúna.
Við höfum öll heyrt um kattarþvott en hér er hundaþvottur:

Hundaþvottur

Þetta er af auglýsingaskilti fyrir bresku hjartaverndina minnir mig, verið að hvetja fólk til þess að hreyfa sig. Það var miði við hliðina á myndinni með lista yfir hluti að gera og var búið að haka við „Walk the dog“ og „Wash the car“.

Í framhaldi af færslunni hérna á undan mundi ég eftir einu af mínu uppáhalds plötuumslögum fyrir Odelay með tónlistarmanninum Beck.

Beck Ég hélt alltaf að þetta væri ungverskur Puli þangað til núna áðan að ég fór að Googla þetta. Ég hafði rangt fyrir mér en ég var hins vegar ekki mjög langt frá hinu rétta svari. Tegundin á umslaginu er ungversk eins og Puli en heitir Komondor. Þeir eiga margt annað sameiginlegt en heimalandið til dæmis eru þeir báðir fjárhundar og hafa báðir þennan einkennandi síða „dreadlokka“ feld. Komondorinn er hins vegar mikið stærri heldur en Puli eins og sjá má á þessari mynd.

Komondorinn er með mjög skemmtilega lýsingu á DogBreedInfo:

„The Komondor is a massive dog with a proud gait. Its body is totally covered with an extraordinary felted and corded coat, which is 8 to 11 inches (20-27cm.) long, and always white. This corded white coat helps the dog blend in well with sheep and also helps protect them from beasts of prey that it might be called upon to fight in his role as flock guardian.“

Sem sagt hundur dulbúin sem kind.

Í framhaldi af Beck umslaginu mundi ég svo eftir þessu hund-skemmtilega tónlistarmyndbandi:

Höfundar þessa myndbands eru Pleix sem er hópur þrívíddarhönnuða, grafískra hönnuða og tónlistarmanna staðsettir í París og framleiða saman mikið af mjög flottum tónlistarmyndböndum þar sem þeir blanda saman ólíkum miðlum. Það er þess virði að skoða það sem þeir hafa gert ef fólk hefur áhuga á tónlistarmyndböndum og því tengdu.

Bloggið er búið að vera í löngu jólafríi en það er kannski eitthvað að lifna yfir því. Byrjum á þessari frábæru auglýsingu sem við rákumst á á netinu.



Tegundin í auglýsingunni heitir PULI og er talið að PON (Polski Owczarek Nizinny) sé afkomandi Puli og Tibetan Terrier. Kolka okkar er einmitt af tegundinni PON.

Puli er sjaldgæf tegund eins og PON en það hafa þó verið fluttir inn tveir hingað til Íslands, einn svartur og einn hvítur. Nú hafa þeir eignast afkvæmi þannig að þeim fjölgar.