Afsakið hvað svarið við getrauninni kemur seint. Það tók bara svo langan tíma að fara yfir allar ágiskanirnar. Hulda var sú sem varð hlutskörpust.

Við erum sem sagt að fara að kaupa okkur lítið, sætt einbýlishús í Kópavoginum, nánar tiltekið í vesturbænum. Eins og allir vita þá er þetta tíminn til í hella sér út í húsakaup og vonast til ná að selja íbúðina sína eftir á. Skynsemin er við völd hér á bæ.

Melgerði

Afhending verður ekki fyrr en í lok sumars og þá verður haldið almennilegt innflutningspartei.