Mon 10 Mar 2008
Alþjóðleg vorsýning HRFÍ var haldin um þarsíðustu helgi og tókum við þátt með góðum árangri.
Kolka varð besta tík tegundar, besti hundur tegundar 1, hlaut íslenskt og alþjóðlegt meistarastig og varð fjórði besti hundur í tegundahópi 1 með eftirfarandi umsögn frá Claudio De Giuliani: „Excellent type + size. Excellent expression. Right set ears. Excellent body porportion. Strong in topline. Right chest. Right compact feet. Little narrow in rear movement. Right coat + colour.“
Kolka fékk sitt annað alþjóðlega meistarstig (Cacib) og þriðja íslenska meistarastig en er of ung til að verða Íslenskur meistari og verður því að bíða þangað til á sumarsýninguni.
Við tókum hreyfimyndir(video) af Kolku í sýningarhringnum og munum við setja það hérna inn fljótlega.