April 2008
Færslur eftir mánuðum
Thu 10 Apr 2008
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt1 athugasemd
Við vorum að versla nýja skó á netinu fyrir ferfætlinginn á heimilinu þar sem þeir gömlu voru eiginlega ekki alveg að virka enda varla skór heldur frekar mjög þykkir sokkar sem féllu ekki að lögun hundafóta og héldust því ekki á með góðu móti.
Til hvers þurfa hundar skó spyrja kannski einhverjir. Jú margir vinnuhundar eru settir í skó svo sem lögreglu- og björgunarhundar sem þurfa að vera í erfiðum aðstæðum sem ekki eru þófavænir. Við þurfum skó fyrir Kolku fyrir tvennskonar aðstæður.
1) Á tímabilinu eftir hún kemur frá hundasnyrtinum og þangað til hún fer á sýningu.
Yfirleitt er mælt með að PON hundar séu baðaðir 5 til 7 dögum fyrir sýningu svo feldurinn jafni sig og nái þessum grófleika aftur. Til þess að varna því að feldurinn verði drullugur þá þarf að setja hana í galla og skó - það er nefnilega eins og að fara út með hvíta moppu og skúra gangstéttarnar að fara með loðin hvítan hund í göngutúr.
2) Í snjó.
Eins og sést á myndinni frá Akureyrarferðinni okkar þá kleprast snjórinn mjög fljótt í feldinn og gerir Kolku erfitt um vik að hreyfa sig. Því er nauðsynlegt að setja á skó fyrir snjó og líka galla ef snjórinn er djúpur.
Þegar við pöntuðum skóna þá tókum við í leiðinni svokallað söðultösku fyrir Kolku. Hana notum við í gönutúrum einu sinni dag til þess að svona orkumikill hundur eins og Kolka er fái meira út úr labbinu.

Við vorum frekar varfærin fyrst þegar við settum þyngd í töskuna - vatn í lítilli appelsínusafaflösku í hvort hólfið. Fljótlega sáum við að hún fann ekkert fyrir því enda ekki nema hálft kíló samtals. Eftir smá rannsóknarvinnu á internetinu komumst við að því að vinnuhundar geta borið 25 til 30% af þyngd sinni sumir meira eins t.d. Sankti Bernards hundar og aðrir mjög stórir hundar. Kolka er um 18 kíló og því ætti hún að geta borið um það bil 5.5 kg hámark. Ég fór að vikta alls konar hluti á heimilinu sem gætu passað í töskuna en jafnframt haft nokkuð góða þyngd í sér. Eftir smá tilraunir komumst við að því að taskan er sem hönnuð fyrir 4 x 0.5l dósir. Samtals eru það 2 kg eða um það bil 12% af hennar þyngd. Það er fínt að byrja á því og færa sig svo ofar.

Fjögur stykki af hverskonar 0.5l dósum er yfirleitt til á heimilinu? Jú bjórdósum.

Kolka gengur því um með fjóra Bavaria bjóra í töskunni. Ef þið rekist á okkur á göngu þá vitið þið að við bjóðum upp á volgan og nokkuð hristan bjór.
Tue 8 Apr 2008
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
KvartEngar athugasemdir
Niðurníðsla og veggjakrot í miðbænum er búið að vera mikið í umræðunni undanfarið. Í öllum hasarnum um hvað miðborgin sé öll útkrotuð gleymist að veggjakrotararnir setja líka mark sitt á aðra hluta höfuðborgarinnar eins og t.d. hverfið okkar - Laugarneshverfið. Ég tók einn 15 mínútna bíltúr í gærmorgun og myndaði það krot sem á vegi mínum varð.

























Þetta er ekki beint fallegt. Ætla þó ekki að ganga svo langt að segja að hverfið sé í niðuríðslu eða að ástandið sé eitthvað verra en það hefur verið áður.
Oft heyrir maður að borgaryfirvöld þurfi að útbúa aðstöðu fyrir veggja-„listamennina“ og beina brúsum þeirra í réttan farveg á fyrirfram ákveðnum veggjum. Miðað við þessar myndir er ekki annað hægt en að gefa lítið fyrir svoleiðis útskýringar. Það er ekki hægt að sjá að það sé einhver listræn tjáning eða brennandi þörf á að segja eitthvað í þessu veggjakroti. Þetta eru krakkar með skemmdarfýsn en ekki tjáningarþörf. Skemmdarfýsninni verður ekki svalað með því að fá leyfi til að spreyja og bara á ákveðnum veggjum.
Burtséð frá þessum ófögnuði eru allar götur og stéttar skreyttar með brotnum flöskum og rusli. Maður verður sérstaklega mikið var við glerbrotin þegar er gengið með hund í bandi um hverfið enda stórhættulegt fyrir fjórar „berfættar“ fætur að stíga niður fæti þar sem glerbrot stendur upp úr malbikinu.
Ég held það sé kominn tími á vorhreingerningu í hverfinu.
Fri 4 Apr 2008
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
myndlist[3] athugasemdir

Síðasta haust, er ég var í einum af mörgum göngutúrunum með Kolku um hverfið, hugsaði með mér hvað það væri leiðinlegt að maður færi alltaf sömu leiðirnar og sömu hringina um hverfið. Ég ákvað þá að gera eitthvað í þessu og setti mér nokkrar reglur:
- Fara í einn langan göngutúr um hverfið á hverjum einasta degi.
- Aldrei fara sömu leiðina.
- Kortleggja hvern göngutúr þannig að hver dagur vikunnar eigi sér ákveðin lit.
Úr þessu ætlaði ég svo að sjá hvort það kæmi eitthvað áhugavert efni sem hægt væri að vinna með.
Síðasta haust entist ég í tæpan mánuð. Hér er afraksturinn af því:

Núna fyrsta apríl tók ég upp þráðinn að nýju. Það eru komnir þrír göngutúrar eins og sjá má á þessu korti:

Göngutúrarnir verða alltaf lengri og flóknari og þess vegna erfiðari að muna. Það er skemmtilegur hluti af þessu hvað þetta reynir á minnið. Síðan er það mikil áskorun hvað það er erfitt að brjóta upp göngutúrana því gatnakerfið er svo ótrúlega klippt og skorið. Því er ég farinn að reyna að stytta mér leið í gegnum garða og verð alltaf ósvífnari eftir því sem það verður erfiðara að brjóta upp götumyndirnar. Svo eru svæði sem eru lokuð eins og gamli strætóreiturinn sem ég þarf að brjótast inn á - annars kemur svo ljótt og stórt autt svæði á kortinu. Ég er líka aðeins farin að fikra mig áfram með mynstur eins og sjá má á myndinni fyrir ofan.
Ég ætla að halda út heilan mánuð í það minnsta núna - vonandi jafnvel meira. Það verður gaman að sjá hver útkoman verður úr því.
Thu 3 Apr 2008
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
HundalífEngar athugasemdir
Thu 3 Apr 2008
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt[2] athugasemdir
Því miður varð ekkert af fyrirhuguðum fasteignakaupum sem greint var frá á þessari síðu ekki alls fyrir löngu.

Ég er í viðskiptum við svo góðan banka sem gekk á bak orða sinna um að lána okkur húsnæðislán þegar á hólminn var komið og aðeins eftir að undirrita kaupsamninginn. Við urðum því að óska eftir riftun kaupsamnings eftir að við athuguðum með lán án árangurs hjá tveimur öðrum bönkum.
Jarðhæðin verður því að duga okkur eitthvað áfram.