Göngukort

Síðasta haust, er ég var í einum af mörgum göngutúrunum með Kolku um hverfið, hugsaði með mér hvað það væri leiðinlegt að maður færi alltaf sömu leiðirnar og sömu hringina um hverfið. Ég ákvað þá að gera eitthvað í þessu og setti mér nokkrar reglur:

  1. Fara í einn langan göngutúr um hverfið á hverjum einasta degi.
  2. Aldrei fara sömu leiðina.
  3. Kortleggja hvern göngutúr þannig að hver dagur vikunnar eigi sér ákveðin lit.

Úr þessu ætlaði ég svo að sjá hvort það kæmi eitthvað áhugavert efni sem hægt væri að vinna með.

Síðasta haust entist ég í tæpan mánuð. Hér er afraksturinn af því:

Sept göngutúrar

Núna fyrsta apríl tók ég upp þráðinn að nýju. Það eru komnir þrír göngutúrar eins og sjá má á þessu korti:

Apríl göngutúrar

Göngutúrarnir verða alltaf lengri og flóknari og þess vegna erfiðari að muna. Það er skemmtilegur hluti af þessu hvað þetta reynir á minnið. Síðan er það mikil áskorun hvað það er erfitt að brjóta upp göngutúrana því gatnakerfið er svo ótrúlega klippt og skorið. Því er ég farinn að reyna að stytta mér leið í gegnum garða og verð alltaf ósvífnari eftir því sem það verður erfiðara að brjóta upp götumyndirnar. Svo eru svæði sem eru lokuð eins og gamli strætóreiturinn sem ég þarf að brjótast inn á - annars kemur svo ljótt og stórt autt svæði á kortinu. Ég er líka aðeins farin að fikra mig áfram með mynstur eins og sjá má á myndinni fyrir ofan.

Ég ætla að halda út heilan mánuð í það minnsta núna - vonandi jafnvel meira. Það verður gaman að sjá hver útkoman verður úr því.