Thu 10 Apr 2008
Við vorum að versla nýja skó á netinu fyrir ferfætlinginn á heimilinu þar sem þeir gömlu voru eiginlega ekki alveg að virka enda varla skór heldur frekar mjög þykkir sokkar sem féllu ekki að lögun hundafóta og héldust því ekki á með góðu móti.
Til hvers þurfa hundar skó spyrja kannski einhverjir. Jú margir vinnuhundar eru settir í skó svo sem lögreglu- og björgunarhundar sem þurfa að vera í erfiðum aðstæðum sem ekki eru þófavænir. Við þurfum skó fyrir Kolku fyrir tvennskonar aðstæður.
1) Á tímabilinu eftir hún kemur frá hundasnyrtinum og þangað til hún fer á sýningu. Yfirleitt er mælt með að PON hundar séu baðaðir 5 til 7 dögum fyrir sýningu svo feldurinn jafni sig og nái þessum grófleika aftur. Til þess að varna því að feldurinn verði drullugur þá þarf að setja hana í galla og skó - það er nefnilega eins og að fara út með hvíta moppu og skúra gangstéttarnar að fara með loðin hvítan hund í göngutúr.
2) Í snjó. Eins og sést á myndinni frá Akureyrarferðinni okkar þá kleprast snjórinn mjög fljótt í feldinn og gerir Kolku erfitt um vik að hreyfa sig. Því er nauðsynlegt að setja á skó fyrir snjó og líka galla ef snjórinn er djúpur.
Þegar við pöntuðum skóna þá tókum við í leiðinni svokallað söðultösku fyrir Kolku. Hana notum við í gönutúrum einu sinni dag til þess að svona orkumikill hundur eins og Kolka er fái meira út úr labbinu.

Við vorum frekar varfærin fyrst þegar við settum þyngd í töskuna - vatn í lítilli appelsínusafaflösku í hvort hólfið. Fljótlega sáum við að hún fann ekkert fyrir því enda ekki nema hálft kíló samtals. Eftir smá rannsóknarvinnu á internetinu komumst við að því að vinnuhundar geta borið 25 til 30% af þyngd sinni sumir meira eins t.d. Sankti Bernards hundar og aðrir mjög stórir hundar. Kolka er um 18 kíló og því ætti hún að geta borið um það bil 5.5 kg hámark. Ég fór að vikta alls konar hluti á heimilinu sem gætu passað í töskuna en jafnframt haft nokkuð góða þyngd í sér. Eftir smá tilraunir komumst við að því að taskan er sem hönnuð fyrir 4 x 0.5l dósir. Samtals eru það 2 kg eða um það bil 12% af hennar þyngd. Það er fínt að byrja á því og færa sig svo ofar.

Fjögur stykki af hverskonar 0.5l dósum er yfirleitt til á heimilinu? Jú bjórdósum.

Kolka gengur því um með fjóra Bavaria bjóra í töskunni. Ef þið rekist á okkur á göngu þá vitið þið að við bjóðum upp á volgan og nokkuð hristan bjór.
April 28th, 2008 at 22:49
Hahaha…
Ég þarf að fara að mæta ykkur
Er alltaf frekar þyrst á göngum…