Skruppum langa helgi á Berserkseyri í þeim tilgangi að komast burt frá höfuðborginni, njóta náttúrunnar og krækja okkur í krækiber fyrir krækiberjavínið. Dóra kom með og var mikið fjör.

Greinilega farið að hausta og sólin liggur lágt.

Fjörug fjöruferð.


Kríurnar voru hvergi sjáanlegar, líklega hræddar við skuggalega gaurinn.

Þetta fólk var á gangi hinumegin við ánna, virtust elta okkar hvert sem við fórum.

Hvað dettur þér í hug þegar þú horfir á þessa mynd?

Nóg komið af skuggagríni þannig að við sleppum því hér.

Í fjörunni með þang í forgrunni.

Berserkseyri ytri er fallegt hús, svo fallegt að fyrirtækið sem klæddi það fyrir nokkrum árum kaus meira að segja að nota mynd af því í tímaritsauglýsingu.

Spiluðum Jungle Speed sem í stuttu máli gengur út á að vera sneggri en andstæðingurinn að grípa trékeflið þegar hann setur út eins spil og þú.

Dóra fylgist grant með hvaða spil Bjarni setur út.

Barist um keflið.

Á hverju er hann eiginlega, kartöflubátum?

Dagbjört ánægð með að vera í sveitinni.

Bannað að borða berin.

Hmmmm… hvar eru nú stærstu berin?

Dóra óð yfir beljandi stórfljótið.

