Mon 22 May 2006
Sönglagakeppni Evrópu er þá lokið.

Silvíu gekk svona illa af því að atriðið var bara ekki nógu súrt. Fyrir þá sem ekki vissu að þetta var grín leit þetta bara út eins og hvert annað hallærislegt yfirdrifið júróvisjón atriði eins og t.d. pólska atriðið (gaurinn með græna hárið og ólétta söngkonan) sem var eiginlega fyndnara heldur en okkar því þeim var alvara. Silvía var að gera grín að þessu en með því að hafa vísanir í hið týpíska (eins og að láta dansarana lyfta henni og hlaupa með fána) þá var hún í raun um leið að setja atriðið niður á sama plan fyrir þá sem ekki vissu um hvað málið snerist. Mér fannst búningarnar t.d. ekki vera nægilega ýktir, vantaði alla litadýrðina sem einkenndi þetta í forkeppninni hérna heima.
En Lordi vann þó sem kom verulega (en skemmtilega) á óvart. Nú þegar hafa komið fram samsæriskenningar um af hverju þeir sigruðu. Ég held hinsvegar að þeir hafi einfaldlega unnið af því að þeir voru með besta lagið og besta atriðið. Mjög einfalt. Sigur þeirra er blaut tuska í andlit allra þeirra klisjukenndu-poppfroðu-fallegafólks-kroppasýningaratriða sem komið hafa fram í keppninni undanfarin ár - blaut og subbuleg tuska sem segir: takið ykkur saman í andlitinu og komið með eitthvað sem varið er í. Það verður gaman að sjá hvaða áhrif þetta hefur á keppnina á næsta ári í Helsinki, ef einhver.
Hér er upptaka úr gríska sjónvarpinu um Silvíu Nótt.


