Thu 3 Apr 2008
Hundalíf
Tue 5 Feb 2008

Tókum þátt í deildarsýningu Fjár- og hjarðhundadeildarinnar í Reiðhöll Gusts fyrir tveimur vikum síðan og gekk Kolku mjög vel. Dómarinn var Kenneth Edh frá Svíðþjóð sem dæmir í úrlistum á næstu heimssýningu sem fer fram í heimalandi hans. Kolka stóð sig vel í sýningarhringnum, var bæði róleg og mjög yfirveguð. Hún fékk fyrstu einkunn, íslenskt meistarstig og var besti hundur tegundar. Þar með tryggði hún sér þátttökurétt í úrslitum en þar náði hún þeim frábæra árangri að vera í þriðji bestu hundur sýningar.
Kolka fékk líka fína umsögn frá Kenneth: "Feminin with nice proportion. Head with nice shape & good exp. Nice eyes and ears. Typical length of neck. Nice topline & croup. Nice ang. and bones. Nice long brisket. Good coat for her age. Very good mover. Exc."
Þessar tegundir tóku þátt: Polski Owczarek Nizinny (1 hundur), Malinois (2 hundar), Briard (4 hundar), Collie rough (4 hundar), Shetland sheepdog (7 hundar), Australian sheperd (9 hundar) and Border collie (18 hundar).
Besti hundur sýningar var Australian Shepherd, annar besti hundur sýningar var Border Collie, þriðji besti hundur sýningar var Polski Owczarek Nizinny fjórði besti hundur sýningar var Shetland Sheedog.
Kenneth Edh að dæma Kolku.
Besti hundur tegundar.
Úrslitin ráðin - Kolka þriðji bestu hundur sýningar á eftir Aussie og Border Collie.

Sun 27 Jan 2008
Í framhaldi af síðustu færslu þá mundi ég eftir þessari bráðfyndnu auglýsingu fyrir Pepsi.
Sniðugt.
Sat 26 Jan 2008
Í framhaldi af síðustu færslu mundi ég eftir þessu minnistæða plötuumslagi fyrir hljómsveitina Alice In Chains frá Seattle með mynd af þrífættum hundi.

Ég hlustaði töluvert á þessa hljómsveit á mínum yngri árum þegar Grunge tímabilið var í hæðstu hæðum. Söngvarinn Layne Staley dó úr of stórum skammti af blöndu af heróíni og spítti (svo kallað „speedball“ á ensku) árið 2002 en hann hafði mjög kraftmikla og hráa rödd sem var einkennandi fyrir hljómsveitina. Hann fannst í látinn í íbúð sinni og er talið að hann hafi þá verið látinn í tvær vikur.
Þegar ég var að lesa mér til um hljómsveitina núna komst ég að því að hún er enn starfandi með nýjan söngvara.
Fri 25 Jan 2008
Í framhaldi af síðustu færslu þá fann ég þessa skemmtilegu afþreygingarsíðu fyrir tilviljun. Á henni er hægt er að búa til sín eigin dýr með því að setja saman hluta af mismunandi dýrum.

Á aðeins nokkrum mínútum bjó ég til þessa sætu dýrategund hér fyrir ofan. Bakið er af hundi.
Fri 25 Jan 2008
Í framhaldi af síðustu færslu mundi ég eftir skemmtilegum verkum eftir þýzka listamanninn Thomas Grünfeld sem hann kallar Misfits. Í þeim blandar hann saman ólíkum dýrategundum og býr til ný dýr - þar notar hann meðal annars mikið hunda. Hér eru tvö dæmi.

Thomas Grunfeld, Misfit (St. Bernhard), 1994 Mixed media (Taxidermy), 24″ x 47″ x 28″, The Saatchi Gallery, London

Thomas Grünfeld Misfit (Dobermann), 1998 Taxidermie 35 x 120 x 80 cmHér má sjá fleiri verk eftir hann.
Thu 24 Jan 2008
Í framhaldi af færslunni hérna á undan þá gróf ég upp mynd frá ferðum okkar til Lundúna.
Við höfum öll heyrt um kattarþvott en hér er hundaþvottur:

Þetta er af auglýsingaskilti fyrir bresku hjartaverndina minnir mig, verið að hvetja fólk til þess að hreyfa sig. Það var miði við hliðina á myndinni með lista yfir hluti að gera og var búið að haka við „Walk the dog“ og „Wash the car“.
Wed 23 Jan 2008
Í framhaldi af færslunni hérna á undan mundi ég eftir einu af mínu uppáhalds plötuumslögum fyrir Odelay með tónlistarmanninum Beck.
Ég hélt alltaf að þetta væri ungverskur Puli þangað til núna áðan að ég fór að Googla þetta. Ég hafði rangt fyrir mér en ég var hins vegar ekki mjög langt frá hinu rétta svari. Tegundin á umslaginu er ungversk eins og Puli en heitir Komondor. Þeir eiga margt annað sameiginlegt en heimalandið til dæmis eru þeir báðir fjárhundar og hafa báðir þennan einkennandi síða „dreadlokka“ feld. Komondorinn er hins vegar mikið stærri heldur en Puli eins og sjá má á þessari mynd.
Komondorinn er með mjög skemmtilega lýsingu á DogBreedInfo:
„The Komondor is a massive dog with a proud gait. Its body is totally covered with an extraordinary felted and corded coat, which is 8 to 11 inches (20-27cm.) long, and always white. This corded white coat helps the dog blend in well with sheep and also helps protect them from beasts of prey that it might be called upon to fight in his role as flock guardian.“
Sem sagt hundur dulbúin sem kind.
Í framhaldi af Beck umslaginu mundi ég svo eftir þessu hund-skemmtilega tónlistarmyndbandi:
Höfundar þessa myndbands eru Pleix sem er hópur þrívíddarhönnuða, grafískra hönnuða og tónlistarmanna staðsettir í París og framleiða saman mikið af mjög flottum tónlistarmyndböndum þar sem þeir blanda saman ólíkum miðlum. Það er þess virði að skoða það sem þeir hafa gert ef fólk hefur áhuga á tónlistarmyndböndum og því tengdu.
Wed 23 Jan 2008
Bloggið er búið að vera í löngu jólafríi en það er kannski eitthvað að lifna yfir því. Byrjum á þessari frábæru auglýsingu sem við rákumst á á netinu.
Tegundin í auglýsingunni heitir PULI og er talið að PON (Polski Owczarek Nizinny) sé afkomandi Puli og Tibetan Terrier. Kolka okkar er einmitt af tegundinni PON.
Puli er sjaldgæf tegund eins og PON en það hafa þó verið fluttir inn tveir hingað til Íslands, einn svartur og einn hvítur. Nú hafa þeir eignast afkvæmi þannig að þeim fjölgar.
Sun 21 Oct 2007

Kolka fór í dag í smalaeðlispróf á vegum fjárhundadeildar HRFÍ. Hún stóð sig vel og við höldum að hún hafi náð, hún skemmti sér allavega konungalega vel. Við fáum niðurstöðuna senda í pósti í næstu viku og munum birta hana hér á síðunni.
Kolka var MJÖG áhugasöm um kindurnar og gelti heilmikið, rak þær og hljóp fyrir þær. Þegar kindurnar voru komnar að girðingunni sneru þær sér stundum við og reyndu að stanga í áttina til Kolku án árangurs því Kolka er töluvert mikið sneggri en var einnig snögg að hlaupa til baka til þeirra. Við fengum reyndar að hitta kindurnar núna á miðvikudaginn hjá Guðrúnu sem er tengilliður Border Collie og býr á Bjarnastöðum í Grímsnesi. Þar tókum eina stutta prufuferð.
Hér er myndskeið samsett úr báðum skiptunum.

