Hundalíf


Kolku gekk mjög vel á alþjóðlegu hundasýningu HRFÍ nú um helgina þar sem yfir 800 hundar af 83 tegundum tóku þátt. Hún fékk 1. einkunn, besti hundur tegundar, heiðursverðlaun, íslenskt meistarastig og alþjóðlegt meistarastig. Hún fékk mjög góða umsögn hjá pólska dómaranum Tomasz Borkowski:

"Nice typical compact with big head + pose (nose?). Nice topline. Excellent coat. Nice in movements. Elegant, friendly with good pigmentations. Strong bones."

Hún komst því í úrslit í tegundahópi 1 þar sem átta bestu fulltrúar fjár- og hjarðhunda kepptu. Kolka gerði sér lítið fyrir og lenti í 3. sæti. Við erum alsæl með þennan árangur.

Hér erum við komum í úrlist í tegundahópi 1. Vinstra megin er Australian Shepherd en hægra megin er fjarskyldur ættingi, Puli.

Hér er Harry Tast dómari frá Finnlandi að dæma Kolku.

Þriðja sætið í tegundahópi 1 staðreynd. Hér er ég að fara að stilla Kolku upp fyrir pabba sem var svo góður að taka myndir fyrir okkur.

kolka pon

Kolka er að fara að taka þátt í alþjóðlegri hundasýningu næstu helgi í annað sinn. Síðast var hún dæmd af dómara frá fæðingarlandinu (Finnlandi) og fékk mjög góða dóma. Núna verður hún dæmd af dómara frá upprunalandinu Póllandi og það verður mjög spennandi að sjá hvað hann hefur um hana að segja.

Bjarni ætlar að sýna hana - skoppa fallega með hana í hring, fram og til baka og svo stilla henni glæsilega upp fyrir framan dómarann pólska. Það er búið að æfa stíft fyrir þessar fjórar mínútur - við höfum farið með Kolku í sýningarþjálfun tvisvar í viku undanfarinn einn og hálfan mánuð ásamt því að skokka eitthvað með hana á hverjum degi til þess að venja hana af því að hoppa af kæti og tölta af einbeitingu í staðinn.

Þegar við sýndum hana síðasta vor þá var hún í hvolpaflokki og vorum við ennþá frekar miklir byrjendur bæði í að sýna og hvernig á að sýna okkar tegund (það er mjög misjafnt hvernig tegundir eru sýndar). Núna höfum við lært heilmikið og ætti þetta því vonandi að ganga eins á best verður á kosið.

Fyrir þá sem hafa áhuga þá er hún sýnd á laugardaginn frá 13.10-13.14 í hring I. Þetta er í reiðhöllinni í Víðidal og kostar 500 krónur á haus að komast inn.

Hér er auglýsingins sem Kolka lék í vor. Þetta eru tvær svokallaðar veðurstiklur - stuttar auglýsingar sýndar á undan veðurfréttum - fyrir Union Investment í Þýskalandi.

Svo kíktum við inn á vefsíðu fyrirækisins að gamni í kvöld og sáum að það var komin ljósmynd af henni líka.

Union Investment

Vorum að horfa á Jay Leno í kvöld sem er ekki í frásögur færandi nema að Sebastian Maniscalco uppistandari náði svo vel til okkar. Hann var alveg ótrúlega fyndinn. Fann tvö myndskeið með honum á YouTube.

Hér er hið fyrra:

Og hér kemur hið síðara:

HRFI1

Þá er hundasýningu HRFÍ lokið og gekk Kolku bara mjög vel. Hún var ein sinnar tegundar og var dæmd af finnska dómaranum Johan Juslin. Hann skoðaði hana á borðinu og fékk að sjá Kolku hreyfa sig frá hinum ýmsu sjónarhornum.

Kolka vann besta tík og besti hvolpur tegundar og að auki fékk hún heiðursverðlaun sem kom henni í úrslitin besti hvolpur sýningar 6-9 mánaða. Í úrslitunum voru 22 hvolpar og einungis 4 hvolpar sem komust í efstu fjögur sætin en Kolka fékk ekki sæti.

Eftir úrslitin fengum við umsögnina sem Johan Juslin gaf Kolku og við erum vægast sagt ánægð með hana. "Excellent breed type. Nice broad scull with a strong muzzle. Ex. neck, strong bones in good balance to the body – correct level topline. Needs to strong up in hindquarters. Puppycoat. Moves well for age. Very correct in profile."

hrfi2

Kolka liggjandi

Eins og endurspeglast hér á blogginu kemst lítið annað að en Kolka þessar vikurnar. Á þeim nótum minnum við á að fyrsta sýningin sem Kolka tekur þátt í er um helgina. Þetta er alþjóðleg sýning HRFÍ og er eins og venjulega í reiðhöllinni í Víðidal og kostar 500 kr inn.

Hún verður í hring II hjá Finnanum Johan Juslin á sunnudag kl. 11.02–11.06. Svo verður hún í básnum hjá Fjár- og hjarðhundadeildinni í anddyri reiðhallarinnar á laugardag milli 13.30 og 14.15 og sunnudag milli 09.00 og 10.00.

Kolka var í snyrtingu í gær og fór svo í myndatöku hjá Helga „afa“ sínum í gærkvöldi og þar var þessi mynd tekin.

Hundahald hefur tekið allan bloggtíma frá okkur í bili. En hér eru nokkur blogg í einu með því helsta.

Dagbjört lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að það var keyrt á hana þegar hún var á leið í skvass í gærkvöldi. Hún var í 100% rétti því það var keyrt aftan á hana þegar hún var að bíða við að komast inn á hringtorg. Hulda var með henni og fengu þær dágott högg sem leiddi af sér verki í hálsi og höfði. Bíllinn er með brotið afturljós og bretti og töluvert beyglaður og erfitt er að opna bílstjórahurðina. Ég var með gítarmagnara í skottinu sem ég veit ekki enn hvort hafi hlotið einhvern skaða af.

Ef maður er tryggður þá fær maður það bætt - ekki satt?

Rekstur Ekkert ehf gengur vel. Vinn um það bil helmingi minna til þess að fá sömu laun og í starfinu hjá Hvíta húsinu sem gefur mér meiri tíma til annara afreka og meiri tíma með Dagbjörtu og Kolku. Er búinn að vera mjög heppinn með verkefni, hef fengið nóg að gera enn sem komið er. Er svo að kenna upp í Listaháskóla 4 morgna í viku námskeið sem ég setti saman í fyrra og nefnist Samband hljóðs og myndar - en það er sérlegt áhugamál mitt.

Vefur Framtíðarlandsins

Hef verið að vinna heilmikið fyrir Framtíðarlandið, gerði m.a. útlit fyrir vefsíðu félagsins sem opnaði á núna á mánudaginn. Hvet alla sem hafa áhuga á að starfa fyrir félagið að skrá sig og bjóða sig fram - það eru spennadi hópar að hefja störf innan félagsins. Ég er í kynningarhópnum sem hittist reglulega og veltir upp hugmyndum til þess að kynna félagið og málefni þess. Svo er ég að vinna að fleiri verkefnum eins og tónlistarmyndband fyrir lag úr Ófögru veröld sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Fórum og sáum verkið um daginn og það er vel hægt að mæla með því. Benedikt Erlingsson leikstýrir en hann er einn af mínum uppáhalds leikurum og núna leikstjórum.

Kolka er núna búinn að vera hjá okkur í einn og hálfan mánuð og erum við strax farinn að huga að næsta innflutningi sem að sjálfsögðu verður annar PON. Ef allt fer eins og áætlað þá ættum við að fá annan hund eftir 1 - 1,5 ár. Það þarf að vanda til verks.

Byrjuðum með Kolku á hundanámskeiði í síðustu viku hjá Ástu Dóru í Gallerí Voff. Það er mjög gaman og hún hefur gott af þessu, hittir meðal annars aðra hunda og lærir að haga sér vel. Hún er þó ekkert voðalega óþæg. Bara stundum þegar við erum úti að ganga, vill vera á undan og þefa af öllu. Henni finnst líka nauðsynlegt að vara mann við öllu fólki sem nálgast með því að gelta smá.

Kolka á Rauðavatni

Við erum mjög fegin að það skuli loksins vera kominn vetur með tilheyrandi snjóþekju. Það gerir líf eiganda loðinna hunda með hvítan feld lífið auðveldara. Þegar rignir og mikil drulla er þurfum við að setja hana í fótabað allavega einu sinni á dag. Kolka er líka mjög ánægð með þetta, alveg elskar að hlaupa og hoppa í snjónum eins og sjá má á myndinni hérna fyrir ofan.

Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá var myndagáta síðustu daga niðurtalning niður í daginn í dag en það er einmitt dagurinn sem við náðum í Kolku okkar í einangrunarstöðina. Sóttum hana í Hafnir um hádegi og fórum beint í góðan göngutúr um Laugardalinn til þess að leyfa henni að losa um alla þessa orku sem safnast hefur saman í fjórar vikur áður en við kynntum hana fyrir nýja heimilinu hennar.

kolka komin

Hún er algerlega draumahundurinn, í mjög góðu andlegu jafnvægi, róleg og yfirveguð en alltaf til í að leika.

« Previous PageNext Page »