Mon 3 Sep 2007
Við fórum í leikhús í gærkveldi og sáum „Lík í óskilum" sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Leikrit þetta er svartur farsi eftir Anthony Neilson sem einnig skrifaði handritið að „Ófögru veröld" sem fékk flest Grímuverðlaunin á síðustu afhendingu þeirra.

Í grófum dráttum fjallar leikritið um lögguteymi sem fær það hlutverk að boða eldri hjónum tíðindum af láti dóttur þeirra á aðfangadagskvöld. Við skemmtum okkur mjög vel og mælum með þessu stykki. Einstaklega fyndið, vel skrifað og það sem skiptir mestu máli með farsa er að þetta er ekki fyrirsjáanlegt.
Já…. og ef þið viljið sjá Ladda dansa eggjandi strípidans alveg niður að hvítum þröngum nærbuxum þá skuluð þið skella ykkur.


