Matar Æði


Fyrir þá sem kunna vel að meta indverskan mat og grill þá erum við með mjög góða uppskrift sem við prófuðum um daginn. Við mælum með þessu enda sjúklega gott.

Indverskt grill

Grillaður indverskur kjúklingur með raita agúrkusósu og naan brauði.

Agúrku raita

Innihald:

  • 1/4 agúrka
  • Salt
  • 150 ml hrein jógúrt
  • 1/4 teskeið chilli krydd

Aðferð: Skrælið gúrkuna og skafið fræin úr með teskeið. Rífið gúrkuna í rifjárni, setjið í sigti, stráið salti yfir og látið standa í 10 mínútur. Skolið síðan saltið burt og kreistið allan vökva úr.

Blandið þessu saman við jógúrtið og hrærið chilli kryddinu saman við. Kælið.


NAAN brauð (10 stk)

Innihald:

  • 500 gr hvítt hveiti
  • 310 ml mjólk
  • 2 teskeiðar (7gr) þurrger
  • 2 teskeiðar Nigella fræ (svört Kúmin fræ)
  • 1/2 teskeið bökunnarduft (baking powder)
  • 1/2 teskeið salt
  • 1 egg, hrært
  • 2 matskeiðar olívuolía
  • 185 ml hrein jógúrt

Aðferð: Sigtið hveitið í stóra skál og búið til holu í miðju þess. Hitið mjólkina á lágum hita þar til hún er líkamsvolg.

Bætið þurrgeri, bökunnardufti og salti við hveitið. Í annari skál er eggi, olíu og jógúrti hrært saman. Blandið þessu saman við hveitið ásamt 250 ml af volgu mjólkinni og hrærið saman í mjúkt deig. Ef degið er þurrt bætið við restina af mjólkinni. Hnoðið í fimm mínútur þar til degið er mjúkt og teygjanlegt. Setjið í olíuborna skál og látið standa á hlýjum stað þar til það hefur tvöfaldast að stærð. Þetta tekur 2–3 klukkustundir. Að því loknu er deigið hnoðað lítillega og skorið niður í 10 jafn stóra hluta. Þeir eru síðan flattir út og teygðir með fingurgómunum í hið hefðbundna dropalaga Naan–form.

Þeim er síðan skellt á heitt grillið í nokkrar mínútur þar til þeir taka lit en þá er þeim snúið við. Best er að geyma þá á diski undir viskustykki til að halda þeim heitum og mjúkum.


Indverskur grillaður kjúklingur

Innihald:

  • 4 kjúklingabringur
  • 2 matskeiðar karrí mauk (rautt Curry paste í krukku)
  • 1 matskeið olífuolía
  • 1 matskeið púðursykur
  • 1 teskeið malað engifer (ground ginger)
  • 1/2 teskeið malað kúmin (ground cumin)

Aðferð: Fyrst eru kjúklingabringurnar settar milli tveggja blaða af bökunarpappír. Þær eru síðan barðar með flötu hlið kjöthamars þangað til þær eru útflattar (eða rúllaðar með kökukefli).

Blandið karrímaukinu, olíunni, sykrinum, engiferinu og kúmininu í litla skál. Drefið blöndunni á báðar hliðar kjúklingabringanna og látið síðan marinerast í nokkra stund (helst 1–3 klst).

Grillið kjúklinginn þangað til hann er tilbúinn og berið fram með heitu Naan brauði og agúrkusósunni.

Smokkfiskur

Ákváðum í gær að elda eitthvað sem við höfðum ekki prófað áður. Eftir skoðunarferð í Nóatúni var ákvörðunin tekin. Smokkfiskur varð fyrir valinu. Ekki það girnilegasta sem hugsast getur (holur fiskur!) en við höfðum hvorugt smakkað hann þannig að við ákváðum að slá til. Fórum eftir uppskriftinni sem fylgdi með sem var "smokkfiskur í basil-tómatsósu". Sósan var mjög góð en fiskurinn var algjört ógeð. Hrikalega var þetta vont, eiginlega bara viðbjóðslegt. Get ímyndað mér að smokkar (eins og í getnaðarvarnir) bragðist svona, gúmmíkennt og ógeðslegt. Eftir þrjá pínlega munnbita var réttinum hent í ruslið og pylsubrauði með osti skellt á grillið þar sem það var það eina sem til var. Aldrei hefur pylsubrauð bragðast jafn vel… líklegast var það vegna misþyrmingarinnar sem bragðlaukarnir höfðu orðið fyrir.

Tamarind

Í London hungraði okkur í indverskan mat og flettum við því í útprentunum af veraldarvefnum að heiman. Upp úr hattinum kom nafnið Tamarind sem ekki var ýkja langt frá hótelinu okkar. Tólið á hótelsímanum var því rifið upp og borð fyrir tvo pantað.

Þegar á staðinn var komið brá okkur örlítið í brún því þetta var aðeins fínna en okkur hafði órað fyrir, dáldið MIKIÐ fínna. Eftir að okkur var fylgt til sætis af móttökufólkinu í gylltumskreyttum sal var heill her af brosandi þjónustufólki sem stjanaði við okkur eins mikið og hægt var, hristi munnþurkuna í kjöltu okkar, helti í glösin næstum því eftir hvern sopa og fylgdist grannt með hvort nokkuð amaði að hjá okkur.

Maturinn var einstaklega ljúffengur og alveg hægt að mæla með þessum stað fyrir Lundúnafara nær og fjær. Þótt verðið hafi verið í hærra lagi var það hverra pennía virði - svipað dýrt og að fara fínt út að borða hérna á Íslandi eins og t.d. á hinum frábæra stað Austur Indíafélaginu sem ávallt er hverra krónu virði og rúmlega það.

The food of india

Við létum ekki þar við sitja heldur borðuðum við gómsætan indverskan í Bexhill með Heiðrúnu og Andy og tvisvar á pöbbum í London, annað skiptið með Halla og Hörpu. Svo keyptum við líka indverska matreiðslubók sem við erum að prufa uppskriftir upp úr þessa dagana.

Mmmm….

Garlic Fresh frá Wrigley

Hvítlaukur er eitt af því besta sem ég veit um og er hann mjög mikið notaður í matargerð á þessu heimili mér til mikillar ánægju og yndisauka. Þessi ást mín á hvítlauk gengur þó ekki svo langt að ég bryðji hrá hvítlauksrif í morgunmat því sterkjubragðið finnst mér ekki gott. Ég kann betur að meta kjarnann í bragði hvítlauksins þegar búið er að elda sterkjuna úr.

Ég bíð ennþá spenntur eftir því að einhver tyggjóframleiðandi taki sig saman í andlitinu og framleiði tyggjó með hvítlauksbragði svo hægt væri að njóta hvítlauksbragðsins í dagsins önn, í leik og starfi. Ég er meira að segja búinn að hanna umbúðirnar eins og sést hér að ofan.

Fyrir aðra unnendur hvítlauksins skelli ég hérna uppskrift að hvítlaukssúpu sem Dagbjört eldaði úr matreiðslubókinni hennar Nönnu en aðeins breytt til að gera hana hollari. Þetta er með þeim betri súpum sem ég hef smakkað fyrir utan hvað hún er einföld og ódýr.

Hvítlaukssúpa frá Kastilíu

60 ml ólífuolía

6 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt

4 brauðsneiðar, dagsgamlar, skorpulausar

1 tsk paprikuduft

cayennepipar á hnífsoddi

1 l kjúklingasoð eða grænmetissoð

pipar, nýmalaður

steinselja, söxuð

Olían hituð í potti og hvítlaukurinn látinn krauma í henni í nokkrar mínútur við fremur hægan hita án þess að brenna. Brauðið skorið í litla teninga og sett út í. Steikt þar til brauðið er gullið og hrært oft á meðan. Papriku og cayennepipar hrært saman við og síðan soðinu. Hitað að suðu og hrært á meðan. Súpan smökkuð til með pipar og salti og tekin af hitanum. Skreytt með saxaðri steinselju og borið fram strax.

Keypti mér malakoff um daginn. Mér hefur alltaf þótt malakoff gott og þar sem ég hef ekki fengið malakoff á brauð í mörg ár fannst mér vera tími til kominn.

Þegar heim var komið las ég innihaldslýsinguna (sem var með pínulitlu letri) og ooooojbarasta…

Innihald: Grísakjöt, dilkakjöt, vatn, folaldakjöt, rotvarnarefni (E250), soyaprótein, kartöflumjöl, salt, mjólkurprótein, þrávarnaefni (E300), sýra (E330), bindiefni.

Held ég hafi ómeðvitað passað mig á því að lesa ekki innihaldslýsinguna áður en ég keypti vöruna. Aftan á pakkningunni er svo táknmyndin af Leonardo sem maður tengir kannski ekki beint við óhollustu, skil reyndar ekki tenginguna milli hans og malakoffs. Kannski er kallinn að segja… þú verður alveg svooona feitur á að borða malakoff.

Leonardo

En ég borðaði þetta nú samt, gat ekki ekki borðað þetta þar sem ég var búin að bíða spennt eftir að fá mér að smakka. Og jú þetta var gott meðan ég borðaði þetta og jú mér leið ekki vel á eftir vitandi af öllu þessu drasli í líkama mínum. En ég mun hinsvegar ekki kaupa þetta aftur.

Ég get þó huggað mig við það að fram kemur skýrum stöfum á rauðum fleti fyrir neðan innihaldslýsinguna að varan sé án MSG.

Þetta er heldur betur búin að vera mikil partýhelgi. Í gær, eftir erfiða vinnu og verkefnaviku, steinsofnuðum yfir fréttunum og rétt skriðum á fætur í tæka tíð til að rölta upp á Sígilt rokk til að fylgjast með Stjörnuleitinni hinni íslensku. Er heim var komið var ærlega slett úr klaufunum, heltum í okkur bjór og þrifum alla íbúðina. Gleðin stóð langt fram á nótt og enda ekki hægt að fara í háttinn fyrr en búið var að taka allt í gegn.

Eldað

Í dag tók ekki minna partý við. Greiddum atkvæði (erum enn ekki búin að ná því að Gísli skuli ekki hafa unnið Villa hártopp), smíðuðum tvö náttborð og hálfan vínrekka fyrir allt þetta berjavín sem í bruggun er og verður líklegast aldrei tilbúið. Í kvöld erum við svo búin að elda endalaust þar sem við höfum aldrei tíma eða orku til þess á virkum dögum og endum alltaf á að borða popp í kvöldmat. Höfum nú tekið þá stefnu að nota lausan tíma til að elda og frysta í hæfilega skammta sem fljótlegt er að afþíða og hita enda varla hægt að fylla upp í næringar- og vítamínþörf með poppkorni einu saman. Það sem við höfum eldað í dag er þetta: Grænmetissúpa með kókos frá feitu systir minni (ólétt), Blaðlauks- og kartöflusúpa, Linsubauna- (rauðar) og grænmetissúpa, Gul linsubaunasúpa, heilhveitibrauð með graskersfræum, lauk, rauðu pestó og ferskum basillaufum og að lokum gerðum við Chapati (indverskar flatkökur) af cafesigrun.com sem voru og eru einstaklega ljúffengar. Við breyttum reyndar uppskriftinni því við bættum hvítlauk í deigið og steiktum kökurnar upp úr hvítlauksolíu. Allt þetta var eldað í vænum skömmtum svo það verðum úttroðinn frystir sem bíður okkar eftir erfiðan vinnu/skóladag næstu vikurnar.

Það verður erfitt að toppa þessa helgi hvað fjörið varðar.

Gerðum ýmislegt um helgina sem við höfum ekki gert/prófað áður.

1) Bökuðum 4 tegundir af brauðhleifum og bollum á föstudagskvöldinu og sötruðum hvítvín í leiðinni. Mælum með miklum bakstri í einu, minni þrif þar sem sömu áhöld eru notuð og nægar birgðir í frystinum.

2) Listasafn Íslands sendi mér boðsmiða fyrir tvo á opnun myndlistarsýningarinnar Íslensk myndlist 1945-1960 sem opnaði á laugardaginn og var planið að skella sér. Því miður gátum við það ekki því það kom í ljós að gerjunin í berjavíninu var alltof lítil og þurftum við því að kaupa meira ger hið snarasta.

island - krótatía

3) Bjarna áskotnuðust 2 miðar í vinnunni á landsleikinn Ísland – Króatía. Það var mjög skemmtilegt sérststaklega fyrri hálfleikurinn þar sem Ísland var mun sterkara og Eiður Smári skoraði 1-0 fyrir Ísland – jibbý. Varð samt pirruð þegar Króatía skoraði sitt þriðja mark og næstum helmingur áhorfenda stóðu upp og fóru heim ca 10 mín. áður en leikurinn var flautaður af þar sem ljóst var að við myndum ekki vinna. Hvernig væri að styðja landsliðið betur? – ekki mjög skemmtilegt fyrir landsliðsmennina að sjá svona marga stuðningsmenn fara heim, ekki mjög hvetjandi. Bjarni slysaðist til að segja við mig: “hélt fólk virkilega að við myndum vinna?” og þá sneri kona sér við sem sat fyrir framan okkur og sagði reiðilega: “að sjálfsögðu héldum við það annars myndum við ekki mæta” og sveiflaði höfðinu harkalega til baka aftur. Þessi kona var mjög dugleg að hneykslast á því sem miður fór hjá íslenska liðinu og skammaði Eið Smára (öskraði á hann) eins og lítinn strák fyrir að missa boltann þegar hann hann var gerði mistök nokkrum metrum frá okkur. Það fannst mér lélegt og efast um að hún gæti gert eitthvað betur enda vel í holdum. En fólk breytist víst þegar það horfir á fótbolta og erfitt er að ráða við tilfinningar sínar. Leikurinn fór eins og flestir vita 3-1. Þetta var þrátt fyrir úrslitin mjög skemmtilegt. Förum samt ekki aftur á landsleik nema að það séu raunhæfir möguleikar á því að við vinnum. Ég var eiginlega á of miklum bömmer eftir leikinn, bjóst ekki við að við ynnum en vonaðist eftir því.

4) Eftir leikinn elduðum við bláberjagraut til að nota berin. Þetta var eina uppskriftin sem við fundum á netinu. Notuðum að sjálfsögðu ávaxtasykur í stað sykurs. Útkoman var ekki alveg nógu góð. Ætlum að nota grautinn til að bragðbæta skyr- og súrmjólkurþeytingana okkar frægu.



Ground Floor

5) Í dag (sunnudag) fórum við svo á tónleika sem hljómsveitin hans Halla (Ground Floor) var með í Þorlákshöfn! Þeir buðu vinum og kunningjum á einkatónleika í Ráðhúsi Þórlákshafnar og tóku spileríið upp til útgáfu. Ground Floor spilar einhverskonar blöndu af poppi, rokki, jazz og bluegrass. Allir 3 upphaflegu meðlimirnir eru frá Blönduósi, Harpa söngkona (og kærasta Halla) er frá Hvammstanga en trompetleikarinn er frá Þorlákshöfn og ákváðu þeir því að halda tónleikana þar. Þetta var mjög skemmtilegt. Lærðum þá skemmtilegu staðreynd á tónleikunum að Þorlákshöfn er einungis 50 ára kaupstaður – eða eins og söngvarinn benti á þá er faðir hans eldri en Þorlákshöfn – mjög ungur bær.

Erum að vinna í því að bæta inn myndum bæði af atburðum helgarinnar og frá berjatínslunni á Berserkseyri.

Þegar ég og Dagbjört kynntumst fyrst í byrjun aldarinnar (snemma árs 2000) lærði ég fljótlega af henni að spá betur í það sem ég læt ofan í mig - þá sérstaklega að lesa innihaldslýsingar á umbúðum matvæla. Ég hafði nýverið hætt að borða rautt kjöt sökum orkuleysis og slens sem kjötáti fylgdi og varð þar af leiðandi að verða meðvitaðri um matseld og næringarfræði enda nauðsynlegt að passa upp á að öll næringarefni fengju að seitla um líkamann.

Það tók auðvitað tíma að komast upp á lagið með það að skoða alltaf fituinnihald, salt- og sykurinnihald, kolvetni og hitaeiningar en náði með tímanum að venja mig á það og í dag er það órjúfanlegur hluti af Bónusferðinni. Einn besti lærdómurinn sem ég dró af þessu öllu saman er að við vitum sennilega ekki nógu mikið um það sem við erum að setja ofan í okkur.

Eitt gott dæmi er efnið gelatín eða matarlím sem er m.a. notað í sælgæti, ís, jógúrt, smjör, niðursoðnar kjötvörur, pylsur, læknislyf og til að hleypa langflesta osta. Ekkert að því nema að 90% þess gelatíns sem framleitt er í dag er gert úr svínshúð þótt eitthvað af því sé gert úr beinum, liðamótum og sinum annara spendýra. Ég sem kaus fyrir fimm árum að hætta að neyta afurða dýra með dökkt kjöt er enn í dag að láta ofan í mig húð, bein og sinar þeirra dulbúið í formi osta, sælgætis ofl. Ekkert sérstaklega ánægjuleg tilhugsun.

Annað sem við virðumst lítið vita um er sætuefnið Aspartame (finnst í flestum sykurlausum og sykurskertum matvörum og drykkjum) og virðast æði skiptar skoðanir á því hvort það sé heilsuspillandi eða ekki. Amma mín kaupir t.d. ekki light eða diet gosdrykki því hún sá grein í Morgunblaðinu þar sem vitnað var í eina rannsókn sem bennti til þess að Aspartame dræpi óeðlilega mikið af heilafrumum. Sumir ganga svo langt að kalla þetta sætt eitur.

Sigrún nokkur sem heldur úti heilsuuppskriftavefnum CafeSigrún.com er á annari skoðun og segir að “þrátt fyrir ótalmargar rannsóknir hefur ekkert komið fram sem hefur stutt það að gervisykur eins og t.d. Aspartame hafi slæm áhrif á heilsuna.” og bendir á svar við fyrirspurn á Vísindavefnum. Í niðurlagi svarsins er m.a. sagt: “Viðamiklar rannsóknir á aspartami benda þannig eindregið til þess að efnið sé hættulaust og við verðum að vona að þær reynist réttar.”

Við skulum svo sannarlega vona það því Aspartame er í diet gosdrykkjum, jógúrt og mörgum unnum mjólkurvörum og flestum sykurskertum matvælum á markaðnum.

Auglýsingar gefa oft líka misvísandi skilaboð um innihald vara og nýlegt dæmi er auglýsing fyrir Létt og Laggott þar sem gefið er í skyn að þú eigir að nota það til að grenna þig þar sem það er fituminna en önnur smjör. Staðreyndin er samt sú að það er með 40 % fituinnihald sem er alls ekki lítið og meirhluti fitunnar inniheldur mettaðar fitusýrur sem eins og flestir vita eru mjög slæmar fyrir hjarta og æðakerfið og hækka slæma kolesterólið í blóðinu.

Svo er líka eitthvað til sem heitir transfitusýrur sem á víst að vera verra fyrir þig en þær mettuðu. Hérna á vef Neytendasamtakanna er grein um transfitusýrur og hvernig ber að forðast þær því ekki er auðvelt að átta sig á hvar þær leynast.

Margt af því sem er auglýst sem fitulaust eða fitulítið er oft hlaðið sykri eins og t.d. fitulaus ís sem mikið er verið auglýst af undanfarið. Oft er líka reynt að blekkja neytendur með því að merkja salt sem sodium en til að fá rétt saltinnihald verður að margfalda sodium innihaldið með tveimur.

Að lokum má benda á að CafeSigrún er með góð heilsuráð fyrir matseld og bakstur til að minnka fitu og sykurinnihald.




Á föstudaginn buðum við nokkrum vinum og kunningjum í grillpartý. Grilluðum við spjót sem við bárum fram ásamt meðlæti út í garði. Á grillinu voru grísabollur með beikonvafningi með ostrusósu, fiskispjót penslað með olíu og steinselju og etið með hvítlaukssósu, kryddlegin kjúklingaspjót með ananas og banönum og svo hvítlauks og matjurta kryddjurtlegna kartöflubáta. Ekki má svo gleyma kartöflusalatinu, sveppum fylltum með smurgráðaosti og grilluðum rækjum. Mæli sérstaklega með kjúklingaspjótunum enda einstaklega góður kryddlögur sem kjúklingurinn er marineraður í. Það kemur sér sérstaklega vel að rækta eigin matjurtir í stofuglugganum þegar á að halda grilll. Veðrið var gott og miðað við hvernig það var dagana fyrir og eftir föstudaginn þá vorum við heppin því ekki hefði verið hægt að hafa þetta úti hina dagana. Ekki er sama stemmning í því að borða grillmat inni. Þetta var mjög gaman og skemmtilegt fólk úr ólíkum áttum sem náði vel saman þannig að stefnan er tekin á að hafa þetta á hverju sumri.



Í gær fórum við svo í brúðkaupspartý til Evu og Ívars. Var eitthvað af áfengum mjöð rennt niður og þar af leiðandi ekkert af viti gert í dag nema að sitja upp í sófa, horfa á sjónvarpið og háma í sig flatböku frá Hróa Hetti. Gott að slappa af eftir erfiða helgi.

Ég var að fá frábærar fréttir um daginn. Hulda var að segja mér það að hún, Terry og Brynjólfur komi heim til Íslands ALFARIÐ í desember!!!

Terry féllst sem sagt á að koma heim fyrr og taka síðasta árið í HÍ. Þetta er alveg frábært. Ég er búin að vera alveg í sjöunda himni undanfarna daga, gott að fá drusluna sína heim.

Erum búin að vera að fikta okkur áfram með flatbökudeig alveg síðan við vorum úti. Við erum alltaf að reyna að gera allan mat eins hollan og mögulegt er. Við erum búin að gera óteljandi tilraunir með spelt og heilhveiti í botninn en allt kemur fyrir ekki þetta verður bara bragðvont. Heilhveitibrauð og speltbrauð er gott en ekki heilhveiti- eða speltbotn. Því erum við bara búin að sætta okkur við það að til að gera góðan flatbökubotn þarf hvítt hveiti til.

Fann reyndar mjög góða uppskrift að flatbökubotni á vef BBC (að sjálfsögðu með hvítu hveiti) eftir vinsælan breskan kokk að nafni Antony Worral Thompson, mjög góður botn enda heitir uppskriftin “Perfect pizza dough.”

Í gær fengum við okkur eldbakaða flatböku. Aðferðin sem við notuðum var að grilla hana á gasgrillinu okkar og ég verð að segja það að þetta er langbesta flatbakan sem við höfum nokkurn tímann smakkað. Alveg í sama gæðaflokki og á veitingastöðum Botninn er settur á grillið í rúmar 3 mín. og honum þá snúið við og sósan og áleggið sett á. Erum búin að finna uppskrift að alveg æðislegri sósu og svo munar öllu að við erum að rækta kryddjurtir sjálf og getum því notað ferskt oregano og basil sem munar öllu. Ef þið hafið ekki prófað að grilla flatböku þá verðið þið að prófa það ef þið hafið aðgang að góðu grilli – sjúklega gott. Við eigum a.m.k ekki eftir að nota ofninn framar við flatbökugerð því sú matseld kemst ekki í hálfkvisti við grillið.