Vinnan


Ekkert ehf er farið að slíta barnsskónum og flutti í síðustu viku að heiman enda orðið 9 mánaða gamalt. Ég leigði vinnustofupláss fyrir fyrirtækið og myndlistina í Skipholti í vinnustofukomplexinu í gamla Exton húsinu. Þar eru arkitektar, tónlistarfólk, hönnuðir og listamenn sem leigja pláss þarna. Ég er í rými með listakonu og Róberti bekkjarfélaga mínum úr LHÍ sem er hönnuður og landslagsarkitekt. Þótt það hafi verið fínt að vinna heima að mörgu leiti þá var það frekar pirrandi að vera alltaf í vinnunni allan daginn, öll kvöld og í raun allan sólarhringinn. Svo var draslið sem mér fylgir farið að flæða út úr herberginu á Laugarnesveginum út um alla íbúð.

Eins og sjá má á myndinni þá er hátt til lofts, vítt til veggja og bjart. Nóg af veggplássi til þess að hengja allt skemmtilega dótið sem ég hef safnað í gegnum árin.

Allir velkomnir í heimsókn. Kaffi á könnunni ef fólk hringir á undan sér.

Opnaði sýningu í gallerí Temp í gærkvöldi á Laugavegi 35 (lítið gallerí fyrir grafíska hönnuði inn af skóbúðinni Far) við lítinn fjölda viðstaddra (eiginlega bara nánustu fjölskyldu mína). Það varð til þess að við þurftum að drekka allt hvítvínið sjálf. Ég get líklega sjálfum mér um kennt þar sem ég sendi bara út boð í tölvupósti í hádeginu í gær.

Hér er smá texti um sýninguna.

Verkin sem sýnd eru í gallerí Temp eru prentverk unnin á síðustu árum upp úr skissum úr enskri vasaorðabók. Hugmyndin er að búa til óhlutbundin myndverk innblásin af einu orði sem er efst á þeirri síðu sem teiknað er á í orðabókinni, gera þannig orðið að mynd. Aðferðin sem notast er við er byggð á kenningum súrrealistana um að ná í myndheim djúpt í undirmeðvitundina með því undirbúa sig andlega undir hvert verk. Fyrst hreinsa hugann, velja síðu af handahófi og byrja strax á teikna án þess að hugsa. Setja þannig niður á blað það fyrsta sem kemur í hugann án þess að láta hugsun koma að máli. Þannig verður penninn bein framlenging á hugmyndafluginu. Myndin þróast svo áfram með því að treysta á tilfinninguna eina en ekki hugsanir eða rök, reglur eða hefðir.

Sýningin verður uppi næstu tvær vikur fyrir þá sem vilja skoða. Getið líka slegið á þráðinn og fengið leiðsögn. Svo er ég að fara purfa nýtt efni í gallerí Dóra (einn veggur bakvið Halldór fyrrum samstarfs mann minn upp í Hvíta húsi). Er svo með tvær sýningar bókaðar eftir áramót, eina á Sólon í janúar og svo set ég upp mína fyrst „stóru“ sýningu í Listasafni Borgarness í febrúar eða mars. Stefni á að sýna myndbands og hljóðverk þar ásamt stórum ljósakassaverkum.

Hundahald hefur tekið allan bloggtíma frá okkur í bili. En hér eru nokkur blogg í einu með því helsta.

Dagbjört lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að það var keyrt á hana þegar hún var á leið í skvass í gærkvöldi. Hún var í 100% rétti því það var keyrt aftan á hana þegar hún var að bíða við að komast inn á hringtorg. Hulda var með henni og fengu þær dágott högg sem leiddi af sér verki í hálsi og höfði. Bíllinn er með brotið afturljós og bretti og töluvert beyglaður og erfitt er að opna bílstjórahurðina. Ég var með gítarmagnara í skottinu sem ég veit ekki enn hvort hafi hlotið einhvern skaða af.

Ef maður er tryggður þá fær maður það bætt - ekki satt?

Rekstur Ekkert ehf gengur vel. Vinn um það bil helmingi minna til þess að fá sömu laun og í starfinu hjá Hvíta húsinu sem gefur mér meiri tíma til annara afreka og meiri tíma með Dagbjörtu og Kolku. Er búinn að vera mjög heppinn með verkefni, hef fengið nóg að gera enn sem komið er. Er svo að kenna upp í Listaháskóla 4 morgna í viku námskeið sem ég setti saman í fyrra og nefnist Samband hljóðs og myndar - en það er sérlegt áhugamál mitt.

Vefur Framtíðarlandsins

Hef verið að vinna heilmikið fyrir Framtíðarlandið, gerði m.a. útlit fyrir vefsíðu félagsins sem opnaði á núna á mánudaginn. Hvet alla sem hafa áhuga á að starfa fyrir félagið að skrá sig og bjóða sig fram - það eru spennadi hópar að hefja störf innan félagsins. Ég er í kynningarhópnum sem hittist reglulega og veltir upp hugmyndum til þess að kynna félagið og málefni þess. Svo er ég að vinna að fleiri verkefnum eins og tónlistarmyndband fyrir lag úr Ófögru veröld sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Fórum og sáum verkið um daginn og það er vel hægt að mæla með því. Benedikt Erlingsson leikstýrir en hann er einn af mínum uppáhalds leikurum og núna leikstjórum.

Kolka er núna búinn að vera hjá okkur í einn og hálfan mánuð og erum við strax farinn að huga að næsta innflutningi sem að sjálfsögðu verður annar PON. Ef allt fer eins og áætlað þá ættum við að fá annan hund eftir 1 - 1,5 ár. Það þarf að vanda til verks.

Byrjuðum með Kolku á hundanámskeiði í síðustu viku hjá Ástu Dóru í Gallerí Voff. Það er mjög gaman og hún hefur gott af þessu, hittir meðal annars aðra hunda og lærir að haga sér vel. Hún er þó ekkert voðalega óþæg. Bara stundum þegar við erum úti að ganga, vill vera á undan og þefa af öllu. Henni finnst líka nauðsynlegt að vara mann við öllu fólki sem nálgast með því að gelta smá.

Kolka á Rauðavatni

Við erum mjög fegin að það skuli loksins vera kominn vetur með tilheyrandi snjóþekju. Það gerir líf eiganda loðinna hunda með hvítan feld lífið auðveldara. Þegar rignir og mikil drulla er þurfum við að setja hana í fótabað allavega einu sinni á dag. Kolka er líka mjög ánægð með þetta, alveg elskar að hlaupa og hoppa í snjónum eins og sjá má á myndinni hérna fyrir ofan.

atvinnulaus

Sagði upp starfi mínu á Hvíta húsinu í gær og í dag er ég því atvinnulaus. Hamingjusamir tímar framundan.

Er þó að vonast eftir góðri framkvæmdastjórastöðu á næstu dögum með sér skrifstofu, útsýni og sveigjanlegum vinnutíma.

dod qoq pop með bob er kominn í verslanir. Ferskasta plata allra tíma frá frumlegustu rokkhljómsveitinni á Íslandi. Hér er hægt að hlusta á lagið Less then three sem er gott. Svo eru þeir með vefsíðu sem á www.dodbobqoqpop.com dod qoq pop með bob

Þeim tekst næstum því að slá út Einstein on the Beach með Philip Glass yfir mest spilaða tónlist í iTunes hjá mér - en bara næstum því.

myndir

Sýningin er þá komin upp. Allir að mæta. Ég og Dagbjört erum á staðnum mörg kvöld vikunnar svo ef fólk þyrstir í list og hefur lyst á drykk þá er um að gera að hafa samband við okkur og eyða með okkur kvöldstund á Næsta bar.

Svona nú ekki vera feimin hver sem þú ert - farsímanúmerið hjá mér er 822 3609.

Undir meðvitund

„Undir meðvitund“ opnar á laugardaginn á Næsta bar.

Ég verð ekki með opnunarteiti í þetta skiptið þar sem ég verð fram á síðustu stundu að klára öll verkin og hef því ekki tíma til að skipuleggja slíkan fagnað. En ég verð á staðnum mestalla helgina (staðurinn er opinn frá 17.00 og fram á nótt) og ef einhverjir hafa áhuga á þá er um að gera að kíkja.

Allir mjög velkomnir.

4 vikur í sýningu og 8 verk eftir að mála. Mynd númer tvö af tíu: Puntilicious

Mér var að bjóðast að halda sýningu á menningarstaðnum Næsta bar frá miðjum október í fjórar vikur en á þeim stað kemur saman landsliðið í menningu og svalar þorsta sýnum. Ég ætla að sýna þar málverk úr nýrri seríu sem ég hef verið að vinna að. Er reyndar bara búinn með tæplega tvær myndir og á þá „aðeins“ eftir að mála sjö til átta. Þarf líklega að nota einhverja sumarfrídaga sem ég á inni til þess að ná að klára þessar myndir í tæka tíð - ekki nema rúmur mánuður til stefnu og nóg annað að gera við að hanna upp í Hvíta húsi, kenna uppi í Listaháskóla og læra listasögu og heimspeki upp í Háskóla Íslands.

Sheath

Verkin á sýningunni eru úr Judicature seríunni minni sem í stuttu máli ganga út á að reyna að tengja framhjá meðvitundinni og koma hendinni í beina tengingu við undirmeðvitundina í sönnum anda súrrealismans. Þessar myndir vinn ég þannig að í gamla enska vasaorðabók krota ég skissu og er efsta orðið á hverri síðu innblástur hvers myndverks. Þessa skissu vinn ég svo með „meðvitundinni“ í tölvu. Á endanum öðlast verkið elíft líf sem málverk á striga.

Er kominn með nafn á sýninguna og verður það

meðvitund Undir

Nafnið vísar í aðferðina til að ná fram þessum myndheimi og hvernig við erum sífellt undir hæl meðvitundarinnar í öllu sem við gerum.

Next Page »