England 2003

1 Old Tovil Road. Þarna bjuggum við á fyrrverandi pöbb (hvað annað?) á neðri hæðinni lengst til hægri í 16 fm „íbúð“. Við sváfum við gluggann sem var 1.5 metra frá ÞUNGRI umferðaræð út úr bænum. Sérstaklega gaman klukkan 6 á morgnana þegar allir bílarnir og þá sérstaklega vöruflutningabílarnir fóru á stjá en þá lék allt á reiðiskjálfi hjá okkur.


England 2003

Eldhúsið var sérstaklega stórt og nýtískulegt en til gamans má geta að skáparnir í svefnherberginu okkar hérna á Laugarnesveginum eru líklega helmingi stærri heldur en allt eldhúsið í 1 Old Tovil Road.


England 2003

Nágrannar okkar. Glugginn að okkar íbúð vinstra megin við búðina.


England 2003

Ye Olde Thirsty Pig var okkar uppáhalds pöbb í eldgömlu ramskökku húsi þar sem svo lágt var til lofts að það hæfði dvergum.


England 2003

„Íslendingurinn“ Ólafur Elíasson var með sýningu í túrbínusal Tate nútímagallerísins þar bjó hann til risastóra sól.


England 2003

Vááá stærsta smjördolla sem ég hef séð…


England 2003

Vorum dugleg að fara á tónleika í London. Sáum m.a. The Mars Volta, Marilyn Manson og Peaches, The Streets ásamt Goldie Lookin' Chain, Sonic Youth, Mínus og Mogwai en þessi mynd er einmitt tekin á þeim tónleikum sem voru haldnir á Astoria sem er mjög skemmtilegur tónleikastaður.


England 2003

Mogwai.


England 2003

Fórum ásamt Heiðrúnu til Eastbourne að heimsækja Einar.


England 2003

Ha ég ?


England 2003

Nei ég!
John eigandi Lashing's sem var einn af fáum pöbbunum sem höfðu leyfi til að að hafa opið lengur en til 23:00.


England 2003

Bjarni á Lashings með fastagesti. Hann var rokkáhugamaður og brenndi Bjarni HAM fyrir hann sem hann kunni ekki að meta.


England 2003

Afgreiðslustúlkan á Lashings og mjög góður kúnni.


England 2003

Heiðrún og Andy buðu okkur í varðeld heima hjá foreldrum Andy á Guy Fawkes kvöldinu svokallaða.


England 2003

Er nýja hárgreiðslan mín ekki örugglega í tízku?


England 2003

Einar.


England 2003

England 2003

Keyptum okkur lítið sætt gervijólatré - Bjarni litli var mjög ánægður með það.


England 2003

Jólin 2003 dvöldum við í London, gistum á alþjóðlegum nemendagörðum í góðu yfirlæti.


England 2003

Þetta voru stresslaus jól, engir jólapakkar og jólainnkaup - bara rölt á milli pöbba og slakað á.


England 2003

Á jóladag var allt lokað, búðir, barir og samgöngur - röltum við um og rákumst m.a. á þessa skemmtilegu jólagluggaútstillginu.


England 2003


England 2003

Á jóladag, eins og siður er í útlöndum, vorum við í jólamat á nemendagarðinum sem var einkar áhugavert og skemmtilegt - sátum við hringborð ásamt fólki frá fjölmörgum þjóðlöndum. Í miðjum matnum var tilkynnt að ávarp drottningar væri að hefjast og fóru þá allir upp á barinn að sjá sjónvarpið. Eftir matinn fórum við beint á flugvöllinn til að ná vél til Íslands og misstum því af eftirmatnum.