England 2004

Við vorum mjög dugleg að elda og baka í stóra, rúmgóða og tæknilega eldhúsinu okkar. Bjarni það hefði nú verið smekklegra að vera í fötum.


England 2004

Það er ekki nóg að vaska upp, þrífa fatnað og íbúðina - svitaholurnar verða líka að fá sitt skrúbb.


England 2004

Christian O'Tool að spila Pool í reykmettuðu bakherbergi Ye Old Thirsty Pig.


England 2004

Ein af heimsóknum til Heiðrúnar í Hastings. Hún var greinilega ánægð að hitta okkur.


England 2004

Kastali í Rochester, kíktum þangað í dagsferð.


England 2004

Enn í Rochester.


England 2004

Virðuleg fröken Dagbjört Tryggvadóttir lafði af Berserkseyri.


England 2004

Ég hef heyrt að hunang sé gott fyrir húðina.


England 2004

Brighton er lífleg og skemmtileg borg. Hér sést Brighton Royal Pavillion.


England 2004

Kannski það helsta sem við söknum frá Englandi, verðlag á drykkjum.


England 2004

Fórum í eina af mörgum Bingóhöllum Englands - það var hálf kjánalegt en jafn fyndið engu að síður. Unnum 50 pund okkur til mikillar ánægju. Það var mikið stress að fylgjast með og fylla út þær tölur sem lesnar voru upp enda voru þær þuldar upp á leifturhraða. Bjarna tókst að kalla upp „BINGÓ“ þegar við vorum ekki með bingó sem var vægast sagt mjög vandræðalegt.


England 2004

Keyptum okkur tjald og þurftum auðvitað að prufukeyra það á tjaldstæði nálægt Maidstone.


England 2004

Ekki annað hægt en að fyllast þjóðarstolti þegar Ísland kemur á skjáinn í Júróvisjón á BBC alveg sama hvernig lagið er og hver flytjandinn er.


England 2004

Æ æ.


England 2004

Chris félagi okkar horfði líka á Júróvisjón og komst vel að orði þegar hann sá framlag Íslands.


England 2004

Téður Chris í sínu eigin afmæli. Hann átti það til að sofna þegar hann drakk.


England 2004

Í Tottenham Court neðanjarðarlestarstöðinni.


England 2004

Þegar leifturljós myndavélarinnar er slökkt er hægt að leika sér með kveikjara til að fá skemmtilega útkomu.


England 2004

England 2004

Aðal verslunargata Maidstone bæjar.


England 2004

Skemmtilegur markaður var á þriðjudögum og laugardögum. Þar var hægt að kaupa ferskt grænmeti og ávexti fyrir lítinn pening. Öskruðu sölumennirnir ofan í hvorn annan: „pound a bowl“, semsagt 1 pund fyrir kúfulla skál af grænmeti eða ávöxtum. Keyptum líka mikið af matreiðslubókum á góðum kjörum. Hér sést Dagbjört djúpt sokkin í matreiðslubók.


England 2004

Kassi af Stellu úr Sainsbury's á leiðinni heim úr skólanum var viðtekinn venja.


England 2004

?


England 2004

Bjarni að taka upp hljóð fyrir eitt af hljóðverkunum fyrir skólann.


England 2004

Fórum til Canterbury í 2 daga vegna ráðstefnu sem Bjarni sótti tengt náminu. Einstaklega heillandi borg mestmegnis með gömlum húsum og steinlögðum götum, fengum bestu flatbökur sem við höfum smakkað á Ítölskum veitingastað þarna sem við munum ekki hvað heitir.


England 2004

Þarna gistum við í Canterbury.


England 2004

Hver vill vinna milljón? 32.000 punda spurningin beindist að Íslandi og höfðu þau svarið eftir nokkra umhugsun.


England 2004

Það var svo mikill raki í „íbúðinni“ okkar að mygla var fljót að ná bólfestu á því sem á festi, undir rúmi, á húsgögnum og veggjum.


England 2004

Tókum yfirleitt rútu þegar við fórum að heimsækja Heiðrúnu og Andy enda kostaði ekki mörg þúsund að ferðast með þeim eins og hérna á Íslandi. Okkur fannst skemmtilegast að vera fremst á efri hæðinni með gott útsýni fram veginn.


England 2004

Á leið til Hastings.


England 2004

Heiðrún og Andy í heimsókn í Maidstone á góðum vordegi. Skelltum okkur í garðinn með bjór og snarl.


England 2004

Kröftugur kvennmaður skildi eftir sig ummerki á kvennsalerni garðsins.


England 2004

Kaldur bjór í heitu veðri.


England 2004

Fjárfestum í badmintonsetti með neti og öllu, újé.