VERKIN
UM SÝNINGUNA
LISTAMAÐURINN
ÖNNUR VERK


THE ARTWORK

ABOUT THE EXHIBITION
THE ARTIST
 

Bjarni Helgason (f. 1977) útskrifaðist af myndlistarbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti árið 1998 og hóf þá nám í grafískri hönnun við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hann útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands með BA gráðu í grafískri hönnun árið 2001. Að námi loknu kviknaði áhugi á að skoða hvernig tónlist myndgerist og vann Bjarni að gerð kvikaðra tónlistarmyndbanda ásamt því að starfa á auglýsingastofum. Bjarni hefur meðal annars unnið myndbönd fyrir BOB, Bent & 7Berg, Coral, Búdrýgindi, Ensími og Dr. Gunna en myndband hans við lag Ensími, „Brighter“, var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2002.

Árið 2003 ákvað Bjarni að víkka sjóndeildarhringinn og fór til Englands til framhaldsnáms í myndlist. Hann útskrifaðist tólf mánuðum síðar með MA gráðu í skjálist (e. Media Arts) frá Kent Institute of Art & Design. Þar rannsakaði Bjarni tenginguna milli hljóðs og myndar, bæði verklega með hljóð- og myndbandaverkum og fræðilega með ritgerðum og rannsóknarvinnu. Verkin á þessari sýningu eru hluti af því ferli sem hófst fyrir rúmum tveimur árum í Englandi. Bjarni starfar nú sem teiknari og kvikari á Hvíta húsinu og við stundakennslu við Listaháskóla Íslands, ásamt því að fást við myndlist.