VERKIN
UM SÝNINGUNA
LISTAMAÐURINN
ÖNNUR VERK


THE ARTWORK

ABOUT THE EXHIBITION
THE ARTIST
 

„Ostranenie“ er rússneska og merkir að gera e-ð ókunnugt (e. defamiliarizing, making strange) og kom fyrst fram í ritgerð Rússans Viktors Schlovsky, „Art as Procedure“ árið 1917. Hugtakið gengur í stuttu máli út á það að sjá hlutina í nýju ljósi, að taka eftir landslaginu sem líður daglega hjá án þess að við veitum því eftirtekt þar sem skynfærin eru orðin ónæm fyrir hversdagslegu umhverfi okkar. Í verkunum á sýningu Bjarna er reynt að gera hið kunnuglega ókunnugt með því að gera áhorfandanum erfitt um vik að sjá tengingu myndefnisins við upprunann – að þröngva meðvitund áhorfandans til að sjá hlutina í nýju ljósi.

Hljóð og tónlist eru annað meginþema sýningarinnar. Það snýst um að kanna hvort og þá hvernig hægt er að myndgera hljóð og tónlist: Sjónræna tónræna. Þar sem hreyfing er forsenda hljóðs er notast við kyrrmyndir úr myndbandsbrotum úr hversdagslífinu. Þeim er raðað saman sem eins konar tónverki þar sem einstakir þættir vinna saman og mynda tónræna heild.