Þegar við bjuggum í Maidstone þá leigðum við bíl og fórum í tveggja vikna útilegu um Cornwall, Devon og fleiri svæði á suðvestur Englandi. Við keyrðum hátt í 2000 kílómetra á þessum dögum og náðum því að skoða okkur mjög vel um þessi skemmtilegu svæði. Þarna sér maður England í réttu ljósi: litlir gamlir bæir, þröngar sveitagötur, strendur fullar af ellilífeyrisþegum, græn engi og skógar. Mælum við eindregið með því að ferðast þarna um.
Við ströndina í Weymouth.

Enskt reðurtákn?
Dæmigerður enskur smábær.
Allt að brenna… Tjaldað og grillað í Westbay sem er lítið hafnarþorp.
Enn í Westbay. Gott tjaldstæði með útsýni yfir bæinn.
Gengum upp á þessa kletta áður en ferðinni var haldið áfram.
Útsýni yfir Westbay frá klettunum.
Skemmtilegur bær með því frábæra nafni "Beer".
Hvar eru ellismellirnir?
Ekki þarna.
Svona voru flestir gömlu sveitavegirnir, bara ein akrein þannig að næstum því vonlaust að mæta öðrum bílum og með gróðri sitt hvoru megin þannig að ekki var hægt að njóta útsýnisins.
Komum við í Donkey Sanctuary. 
Asnalegur að bíta gras.
Við ferðuðumst á ljóshraða.
Pentewan hjólhýsagarðurinn ekki langt frá bænum St.Austell í suðurhluta Cornwall. Flatur og leiðinlegur staður en við sjóinn og fallega strönd.
Indíánatjald að hætti Bjarna.

Um kvöldið voru flestir inni í sínum hjólhýsum að horfa á sjónvarpið en við skunduðum á hverfispöbbinn…
Skipperinn.
St. Maves. Fallegur strandbær með flottum og dýrum húsum fyrir ríka fólkið.

