


Rákumst á sniðugt tjaldsvæði í friðlýstum skógi. Þegar búið var að borga og inn á svæðið var komið reyndist þetta vera forarpyttur með trjám í kring.
Bara að koma tjaldinu upp gerði það að drullugasta tjaldi norðan Sahara.
En það tókst að lokum og þá var loksins hægt að kveikja í grillinu og fá sér bjór. Þegar við vorum nýbúin að setja matinn á grillið komu skógarverðirnir öskrandi og skipuðu okkur að slökkva á grillinu. Þar sem þetta var friðað skóglendi var bannað að hafa opinn eld - hefði kannski mátt segja okkur það áður en við borguðum okkur inn. 
Das model…

Síðasta daginn byrjuðum við í Brighton.
Emilíana Torrini býr í Brighton - við sáum hana hinsvegar ekki.
Í Brighton er mjög falleg strönd.
Og kaldur sjór.
Við enduðum svo ferðalagið í Legolandi sem er í Windsor vestan við London.

Óhugnalegir LEGO úlfar - eða ekki.
Það voru legó útgáfur af flestum norðurlanda höfuðborgunum - nema Reykjavík.
Springfield nuclear powerplant.
Okkur tókst að keyra framhjá alvöru Stonehenge en fengum sárabætur í Legolandi.
Gaman í barnaleiktækjunum.

Mér sýnist hún vera alveg að missa flöskurnar.
Skil ekki ensku.

